Huang vill aftur í forstjórastólinn
Jensen Huang, sem sagði starfi sínu lausu sem forstjóri Nvidia nýlega, segist reiðubúinn að snúa aftur væri hann beðinn um það.
The New York Times greinir frá. Jensen lýsti þessu sjálfur yfir í yfirlýsingu sem er sú fyrsta síðan skandallinn kom upp sem leiddi til starfsloka hans.
Nvidia er eitt verðmætasta tæknifyrirtæki Bandaríkjanna. Huang lét af störfum eftir að upp komst um framhjáhald hans með konu sem bandarísk stjórnvöld telja að hafi starfað sem njósnari á vegum kínverskrar leyniþjónustu.
Hún starfaði fyrir fyrirtækið Megaspeed innan gervigreindargeirans í Kína. Sú heitir Alice Huang og deilir því nafni með Jensen Huang.
Segir marga hafa kallað eftir endurkomu sinni
„Ég hef séð fjölda starfsmanna, fjárfesta, viðskiptafélaga og viðskiptavini kalla eftir endurkomu minni í forstjórastólinn,“ segir Huang.
„Ef stjórn fyrirtækisins kemst að þeirri niðurstöðu að endurkoma mín sé hluthöfum, viðskiptafélögum og starfsmönnum til hagsbóta, væri mér það mikill heiður að svara kallinu og taka við starfi forstjóra á ný.“
Elon Musk er meðal þeirra tæknijöfra sem hafa talað fyrir endurkomu Huang sem var vinsæll í starfi áður en málið komst upp. Eftir að fyrrnefnt framhjáhald leit dagsins ljós varð ljóst að Huang hefði haldið við fleiri konur. Alls er vitað af þremur konum sem hann á að hafa haldið við utan hjónabands.
Nvidia sérhæfir sig meðal annars í öflugum örflugum fyrir gervigreindarver en Bandaríkin hafa sett á viðskiptabann sem kveður á um að ekki skuli selja Kínverjum öflugustu örflögurnar.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
