Saksóknari fellir niður mál tengt andláti Lúðvíks
Frá aðgerðum undir lok október þegar sigmenn fóru í sprunguna í leit að líkamsleifum Lúðvíks. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Embætti héraðssaksóknara hefur fellt niður mál á hendur fimm einstaklingum sem höfðu réttarstöðu sakbornings í tengslum við andlát Lúðvíks Péturssonar. Hann lést þegar hann féll niður um jarðfall við jarðvinnu í Grindavík í janúar 2024.
Tveir þeirra sem höfðu réttarstöðu sakbornings voru starfsmenn Náttúruhamfaratrygginga Íslands, tveir störfuðu hjá verkfræðistofunni Eflu og einn hjá verktakafyrirtækinu sem Lúðvík starfaði hjá.
Júlí Karlsson, aðstoðarsaksóknari hjá embætti héraðssaksóknara, staðfesti við mbl.is að málið hefði verið fellt niður en hafnaði því að afhenda greinargerð með rökstuðningi fyrir niðurstöðunni.
Mögulegt manndráp að gáleysi
Lögreglan á Suðurnesjum rannsakaði málið. Þar sem embættið stýrði almannavarnaaðgerðum í umdæminu þegar slysið varð var hæfi þess til rannsóknarinnar tekið til skoðunar. Ríkissaksóknari komst að þeirri niðurstöðu að lögreglustjórinn væri ekki vanhæfur til að fara með rannsóknina.
Rannsóknin beindist að mögulegu manndrápi af gáleysi og brotum á vinnuverndarlögum. Í skýrslu Vinnueftirlitsins um atvikið var gagnrýnt að verkið hefði verið unnið án þess að fullnægjandi áhættumat lægi fyrir. Jafnframt var dregið í efa að nauðsynlegt hefði verið að ráðast í verkið á þeim tímapunkti.
内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗