Fleiri félög gætu bæst við kapplaupið

Chelsea hefur áhuga á að fá Eli Junior Kroupi, 20 ára sóknarmann Bournemouth, til félagsins. Hefur kappinn verið sterklega orðaður við Arsenal.

Kroupi skoraði 13 mörk í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð og átti stóran þátt í því að Bournemouth tryggði sér sæti í Evrópukeppni.

Chelsea vill styrkja sóknarlínu sína og hefur þá einnig áhuga á Alex Scott, liðsfélaga Kroupi hjá Bournemouth.

Kroupi, sem getur bæði leikið sem fremsti maður og úti á kanti, skoraði sitt fyrsta mark fyrir franska landsliðið gegn Tyrklandi um helgina.

Bournemouth vill hins vegar ekki selja Frakkann í janúar og gætu áhugasöm félög því þurft að bíða fram á sumar með að reyna að fá hann til sín.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅