Grunuð um að hafa gefið barnunga dóttur sína í hjónaband

Ferðasaga mannsins og stúlkunnar vakti athygli tollvarða á Keflavíkurflugvelli.

Ferðasaga mannsins og stúlkunnar vakti athygli tollvarða á Keflavíkurflugvelli. mbl.is/Karítas

Lögreglan á Suðurnesjum rannsakaði meint mansal og nauðungarhjónaband 15 ára stúlku sem kom til landsins í nóvember 2024 í fylgd manns sem hún hafði verið gefin í hjónaband með. Foreldrar stúlkunnar voru meðal þeirra sem voru handteknir vegna málsins.

Þetta kemur fram í úrskurði Landsréttar frá 30. janúar 2025 sem var birtur á vef Landsréttar í dag.

Málið kom upp 5. nóvember 2024 þegar tollverðir á Keflavíkurflugvelli höfðu afskipti af manninum og stúlkunni þar sem ferðasaga þeirra vakti athygli.

Maðurinn gat ekki gefið fullnægjandi skýringar á ferðalaginu og var handtekinn. Stúlkan var í kjölfarið færð í umsjá barnaverndaryfirvalda.

Þegar lögregla fylgdi stúlkunni úr flugstöðinni komu tveir menn að og sagðist annar þeirra vera faðir hennar. Hann gat hins vegar ekki útskýrt tengsl sín við stúlkuna nánar. Síðar kom í ljós að hann var faðir mannsins sem ferðaðist með henni.

Báðir mennirnir voru handteknir og úrskurðaðir í gæsluvarðhald ásamt manninum sem ferðaðist með stúlkunni.

Klæddist hvítum brúðarkjól

Við rannsókn málsins greindi stúlkan lögreglu frá því að foreldrar hennar hefðu gefið hana manninum í hjónaband samkvæmt hefðum þeirra.

Stúlkan lýsti því að hún hefði klæðst hvítum brúðarkjól við athöfnina og farið með manninum á efri hæð húss þar sem hann hefði haft við hana kynmök á meðan aðstandendur biðu á neðri hæðinni.

Í kjölfarið hefðu þau komið aftur niður og sýnt rauðan blett til staðfestingar á því að sambandið hefði verið innsiglað.

Við rannsókn á farsímum sem lögregla lagði hald á fundust meðal annars myndir af stúlkunni í hvítum brúðarkjól ásamt öðrum aðilum málsins.

Faðirinn viðurkenndi samkomulag

Foreldrar stúlkunnar voru handteknir við komu til Íslands 8. nóvember 2024.

Við skýrslutöku kannaðist faðir hennar við að samkomulag hefði verið gert milli fjölskyldnanna um samband dóttur hans og mannsins. Foreldrar þess síðarnefnda hefðu komið til hans til að ræða ráðahaginn.

Lögreglan taldi föðurinn meðal annars grunaðan um mansal með því að hafa útvegað, flutt og afhent dóttur sína í þeim tilgangi að koma henni í nauðungarhjónaband.

Landsréttur felldi farbann úr gildi

Héraðsdómur Reykjaness féllst í janúar 2025 á kröfu lögreglu um að faðir stúlkunnar sætti farbanni til 21. mars sama ár.

Maðurinn kærði niðurstöðuna til Landsréttar sem felldi úrskurðinn úr gildi.

Landsréttur taldi lögreglu ekki hafa sýnt fram á með fullnægjandi hætti að rökstuddur grunur beindist að manninum um brot gegn því ákvæði hegningarlaga sem vísað var til í farbannskröfunni.

Þá hefði lögregla ekki rökstutt með hvaða hætti ætluð háttsemi hans gæti varðað við önnur refsiákvæði.

Taldi rétturinn því ekki lagaskilyrði fyrir því að maðurinn sætti farbanni.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅