Ákall landsliðsins: Við þurfum ykkur

KSÍ og bakhjarlar sambandsins bjóða á leik Íslands og Portúgals í umspili um sæti á heimsmeistaramóti kvenna í knattspyrnu. Leikurinn fer fram á Laugardalsvelli 5. desember.

Hægt verður að sækja boðsmiða í miðakerfi KSÍ. Miðarnir gilda í númeruð sæti og leiðbeiningar um hvernig nálgast má þá verða á miðasöluvef sambandsins og hjá Miðahjálp KSÍ.

Boðið er hluti af verkefninu „Skrifum söguna saman“. Með því vilja sambandið og bakhjarlar þess fá fullar stúkur á Laugardalsvöll og öflugan stuðning við íslenska liðið.

Þetta er síðari viðureign liðanna en sú fyrri verður í Portúgal 1. desember. Sigurvegarar einvígisins tryggja sér þátttökurétt á HM í Brasilíu næsta sumar.

Kynningarmyndband verkefnisins má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅