Elsti Bond-leikarinn gefur nýja gaurnum ráð

Elsti núlifandi Bond-leikarinn George Lazenby á nokkur góð ráð til handa nýjasta meðlimi Bond-hópsins, Robert Pattinson.

Nærri sex áratugir eru liðnir frá því að Lazenby, sem nú er 87 ára, var í hlutverki njósnara hennar hátignar, var annar maðurinn til að gegna hinu goðsagnakennda hlutverki. Lazenby lék Bond í On Her Majesty’s Secret Service árið 1969. Er það eina myndin sem Lazenby lék Bond. Sean Connery lék hann í þeirri fyrstu og sneri aftur í hlutverkið í myndinni Diamonds Are Forever árið 1971.

George Lazenby í hlutverki sínu. Mynd: Getty.

„Robert, velkominn í flottasta einkaklúbb í heimi,“ sagði Lazenby í myndskeiði á Instagram í „Mundu að njóta þess. Við sjáum til hvort þú eigir augnablik sem minnir á línuna: „Þetta kom aldrei fyrir hinn gaurinn.“ Gangi þér sem allra best, vinur, George,“ sagði Lazenby að lokum í þessu hjartnæma myndskeiði.

 Þótt engar opinberar fréttir hafi enn borist frá öðrum leikurum úr Bond-myndunum, sagðist Ralph Fiennes, sem fór með hlutverk M í síðustu þremur myndunum ásamt Daniel Craig, enn vera „ástfanginn“ af Craig. „Því miður. Ég er enn ástfanginn af Daniel Craig, svo þetta er erfitt,“ sagði hann í samtali við Andy Cohen í þættinum SiriusXM Front Row. Fiennes tók þó fram að Pattinson væri „frábær leikari“.

„Ég er viss um að hann myndi standa sig frábærlega,“ bætti hann við.

Í kjölfar frétta um að hlutverkið félli Pattinson í té sendi hann frá sér yfirlýsingu þar sem sagði: „James Bond er einhver goðsagnakenndasta persóna kvikmyndasögunnar og að fá það traust að túlka 007 er heiður sem maður upplifir aðeins einu sinni á ævinni. Ég er afar þakklátur þeim Denis, Amy, David, Tanya og öllum hjá Amazon MGM Studios fyrir trúna sem þau sýna mér. Að segja að þetta hlutverk sé draumur sem rætist er vægt til orða tekið. Ég gæti ekki verið spenntari fyrir þessu samstarfi og þeirri vinnu sem framundan er með þessu frábæra teymi.“

Ekki hefur verið staðfest hvenær nýja Bond-myndin verður frumsýnd, né hversu lengi Pattinson mun fara með hlutverkið. Áður en tilkynnt var um ráðningu hans greindi Puck News hins vegar frá því að samningur hans næði til þriggja Bond-mynda, en aðrir sem komu til greina í hlutverkið hefðu átt að leika í fjórum myndum.

„O'Connor og Lowden þurftu til dæmis að skuldbinda sig til að leika Bond í fjórum myndum, ef þeir yrðu valdir. Pattinson gat hins vegar lækkað þessa skuldbindingu niður í þrjár myndir auk þess að fá mun hærri greiðslur en hinir, enda er hann stórstjarna.“

Myndirnar alls 25 talsins

Fyrsta mynd Pattinson verður sú 26 í röðinni um njósnara hennar hátignar.

Hingað til hefur Daniel Craig gegnt hlutverki Bonds lengst allra samfellt, en hann fór með hlutverkið í 16 ár í fimm myndum, sem komu út árin 2006, 2008, 2012, 2015 og 2021. 

Lazenby fór með hlutverkið í aðeins eitt ár, í einni kvikmynd, sem kom úr 1969.

Sean Connery fór með hlutverkið í tvennu lagi, fyrst í fyrstu fimm myndunum á sex ára tímabili, 1962, 1963, 1964, 1965 og 1967. Hann sneri svo aftur eftir einu mynd Lazenby og lék Bond í einni mynd til viðbótar 1971.

Roger Moore fór með hlutverkið í sjö myndum sem komu út á 13 ára tímabili, 1973,1974, 1977, 1979, 1981, 1983 og 1985.

Timothy Dalton fór með hlutverk Bond í tveimur myndum, sem komu út 1987 og 1989. 

Pierce Brosnan fór með hlutverkið í fjórum myndum sem komu út á átta árum, 1995, 1997, 1999 og 2002.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅