„Ef við höfum ekki áhuga á því að þessi dæmi verði mjög mjög mörg þá þarf að stoppa þetta“

„Við erum að mörgu leyti ríkari sem samfélag vegna innflytjenda en þessi fjölgun byggði ekki á neinni stefnu. Þetta einhvern veginn bara gerðist. Stjórnvöld höfðu enga innsýn, enga yfirsýn, hverjir eru þetta, hvaðan kemur fólkið? Og svo heyrði maður þetta mjög skýrt í síðustu kosningabaráttu, að tala við kennara sem eru með mjög mörg börn í bekknum hjá sér sem tala ekki íslensku,“ segir Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra í viðtali í Spjallinu með Frosta Logasyni í Brotkasti. Hún segir að fjölgun innflytjenda á síðustu árum hafi haft mikil áhrif á húsnæðismarkaðinn, heilbrigðiskerfið og menntakerfið, markmiðið sé núna að breyta kerfinu í átt að því að sem gerist á hinum Norðurlöndunum. 

Mesta mannúðin ekki að sturta inn fólki og sjá til

Frosti las þá upp fyrir hana dæmi úr opinberum gögnum, segir hann að þetta dæmi sé lýsandi fyrir hundruð mála, um sé að ræða karlmann fæddan 1987 frá Miðausturlöndum sem kom til Íslands árið 2020 sem hafi farið þá beint á framfærslu hjá Reykjavíkurborg og verið á þeirri framfærslu þangað til í maí síðastliðnum þegar hann fór að fá greiðslur frá Tryggingastofnun, er hann búsettur í niðurgreiddu húsnæði á vegum Félagsbústaða. Maðurinn hefur ekki myndað nein tengsl við Ísland, hefur aldrei starfað hér og hefur enga hvata til að læra tungumálið, samt verður hann á framfæri skattgreiðenda út ævina. Þorbjörg ætlar að vinda ofan af málum sem þessum.

„Annars vegar í þessu frumvarpi sem Alþingi er með núna, ef þú kemur hérna upphaflega til að fá alþjóðlega vernd þá þarftu að geta sýnt fram á að þú getir framfleytt þér, það á kannski ekki við í þessu tilfelli en nú ég er að vinna í reglugerð, sem er nú inni í samráðsgátt, þar sem verið er að ramma inn; ef þú sækir um rétt til dvalar á Íslandi þá þarf að vera krítería um hvernig þú getir framfleytt þér. Það hafa verið ákveðin viðmið í gangi hjá Útlendingastofnun sem eru alveg neðst í fátæktarmörkum,“ segir Þorbjörg Sigríður. Með nýjum viðmiðum þarf viðkomandi umsækjandi að sýna fram á hvernig hann ætli að lifa af á Íslandi. Fólk viti af þeim séríslensku reglum sem eru nú í gildi. „Ef við höfum ekki áhuga á því að þessi dæmi verði mjög mjög mörg þá þarf að stoppa þetta. Og það er það nákvæmlega sem ég er að gera. Annars vegar í gegnum þetta dvalarleyfisfrumvarp og þessa reglugerð sem tekur vonandi gildi von bráðar.“ 

Þorbjörg Sigríður segir að það sé ekkert gleðiefni þegar verið sé að vísa fólki úr landi en þegar fólk fái alþjóðlega vernd en brjóti af sér þá verði því vísað úr landi. „Það sem að skandinavísku ríkin eiga sameiginlegt með okkur eru að við erum sterk velferðarríki, réttarríki, það er samfélagssáttmáli um ákveðin lífskjör og lífsgæði, fólk borgar sína skatta og ætlast til að fá þjónustu í staðinn. Þetta er bara lýsingin á Norðurlöndunum öllum. Þannig að það er skiljanlegt þegar fólk verður þess áskynja að það séu ákveðnir hópar sem koma til lands í þeim tilgangi að fara gegn þessum samfélagssáttmála,“ segir hún. 

Þorbjörg segir að framan af hafi Íslandi gengið mjög vel að taka á móti fólki á flótta, nefnir hún meðal annars þegar hópur fólks kom frá Víetnam á áttunda áratugnum. „Þetta var vel undirbúið, hópurinn var viðráðanlegur og þá var sagan farsæl. Þeir sem eru alveg frjálslyndismegin í því að við tökum bara við öllum, allir mega koma, þeir sem hafa verið að spreyja á dómsmálaráðneytið einhverjum orðum í minn garð og allt þetta. Mér finnst mesta mannúðin ekki felast í því að bara sturta inn fólki og sjá svo bara til,“ segir hún. 

Au-pair stúlka látin þrífa hótel

Þorbjörg ræddi einnig um frumvarp sitt um að afnema dvalarleyfi fyrir au pair frá ríkjum utan EES. María Björk Einarsdóttir, forstjóri Ása, sagði áformin fordómafull og lykti af hvítri forréttindablindu. Hefur hópur 87 foreldra lýst því yfir að þau vilji borga fyrir eftirlit með au pair-stúlkum.

„Umkvartanirnar koma jafnan, eða oft, eftir að dvölinni lýkur. Þá erum við með dæmi um að stelpa hafi í reynd verið að vinna fyrir þrjár fjölskyldur. Sofið á gólfinu á milli tveggja barnarúma. Verið nýtt í það að þrífa hótel,“ segir Þorbjörg Sigríður.

„Ég skil vel að fjölskyldur vilji geta gert þetta. Mér finnst ekki augljóst í að við eigum að nota peninga skattgreiðenda í að snarauka eftirlit inni á heimilum fólks með því hvernig heimilishjálpinni líður. Þannig að ég tók þessa ákvörðun og veit að ég er óvinsæl hjá einhverjum.“

Hér má sjá klippu úr viðtalinu:

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅