Rooney íhugaði að fremja sjálfsvíg

Wayne Rooney, goðsögn Manchester United, hefur greint frá því að hann hafi íhugað að svipta sig lífi þar sem hann glímdi við áfengisvandamál og mikla vanlíðan á knattspyrnuferlinum.

Rooney, sem er 41 árs, ræddi erfiðleikana í hlaðvarpinu Life at the Midpoint og sagði dalina hafa verið dýpsta þegar hann var á hátindi ferilsins.

„Ég fór heim, lokaði mig inni í tvo daga og drakk. Þetta var líklega á besta kafla ferilsins. Ég var kominn á þann stað að ég íhugaði sjálfsvíg. Ég vildi ekki vera nálægt neinum, hitta fólk á götum úti eða fara í búðir,“ sagði einlægur Rooney.

Rooney sagðist alltaf hafa fundið fyrir öryggi á knattspyrnuvellinum en átt erfitt með flest annað. Hann taldi þó ekki að drykkjan hefði haft áhrif á frammistöðu sína í leikjum.

Erfiðleikarnir reyndu verulega á hjónaband hans og Coleen Rooney en hann segir eiginkonu sína hafa átt stóran þátt í að hjálpa sér í gegnum þessa tíma.

Rooney leitaði að lokum til sálfræðings en sagði að það hefði reynst erfitt að viðurkenna vandann.

„Maður vill ekki sýna veikleika og reynir því að fela þá. Mér fannst ég vera minni maður fyrir að viðurkenna hvernig mér leið.“

Ef einstaklingar glíma við sjálfsvígshugsanir er bent á Hjálparsíma Rauða krossins 1717 og netspjall Rauða krossins 1717.is. Opið allan sólarhringinn. Einnig má hafa samband við Píeta-samtökin sem veita ókeypis ráðgjöf í síma 552-2218, allan sólarhringinn. Netspjall Heilsuveru þar sem svarar hjúkrunarfræðingur er líka opið frá kl.8-22 alla daga. Fyrir þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi má fá stuðning í sorg hjá Sorgarmiðstöð og hjá Pieta samtökunum.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅