„Ég heyrði þann orðróm út um allar trissur“
Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi ráðherra og þingmaður Samfylkingarinnar, segir að fyrirhuguð vistaskipti Ingvars Þóroddssonar hafi ekki verið meira leyndarmál en svo að hann hafi heyrt af málinu fyrir tæpum mánuð síðan.
Þetta kemur fram í færslu Össurar undir frétt Vísis.is á Facebook.
Segist hann hafa skrifað forystumanni í sínum gamla flokki póst klukkan 15:41 þann 21. október og upplýst að hann hefði óyggjandi sannanir fyrir því innan úr Sjálfstæðisflokknum að Ingvar hygðist segja sig úr Viðreisn og færa sig yfir í Sjálfstæðisflokkinn.
„Meira leyndarmál var þetta nú ekki,“ skrifar Össur.
Ingvar sakaði forseta Alþingis fyrr í dag um að hafa lekið upplýsingum um vistaskiptin áður en hann náði að segja samflokksfólki sínu frá ákvörðuninni, en þau áttu fund fyrir skömmu þar sem sættir náðust.
Í samtali við mbl.is segir Ingvar að Þórunn hafi ekki gert sér grein fyrir því að málið væri á trúnaðarstigi, enda þyrfti að upplýsa skrifstofu þingsins um málið. Sjálfur hafi hann ekki gert sér grein fyrir þeirri upplýsingaskyldu.
Ósáttur í langan tíma
Spurður út í ummæli Össurar segir Ingvar að orðrómur sé ekki það sama og ákvörðun. Hann hafi gert sér grein fyrir því í töluverðan tíma að orðrómur hafi kvisast út um að hann hygðist færa sig yfir í Sjálfstæðisflokkinn, enda hafi það ekki verið leyndarmál að hann væri ósáttur innan Viðreisnar.
„Ég hef ekki verið sáttur í nokkurn tíma og það var orðrómur í gangi um að ég væri að fara að skipta. Ég heyrði þann orðróm út um allar trissur,“ segir Ingvar.
En það skipti hann máli að fá að greina sínu fólki frá ákvörðuninni um vistaskiptin þegar hún var tekin. Honum hafi þótt miður að fólk hafi þurft að frétta af því frá öðrum en honum sjálfum.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
