Miklar gleðifréttir fyrir Tiger Woods
Stórstjarnan Tiger Woods snýr aftur til keppni í golfi í desember eftir meira en tveggja ára fjarveru frá hefðbundnum mótum.
Woods, sem er fimmtugur, hefur ekki tekið þátt í móti sem gefur stig á heimslistann síðan á Opna breska meistaramótinu árið 2024, sem fram fór á Royal Troon-vellinum í Skotlandi.
Undanfarin ár hafa verið honum erfið, bæði vegna ítrekaðra meiðsla og erfiðleika í einkalífinu. Nú hefur hins vegar verið staðfest að hann verði meðal keppenda á Hero World Challenge á Bahamaeyjum í næsta mánuði.
Woods er sjálfur gestgjafi mótsins, sem er hluti af dagskrá PGA-mótaraðarinnar en gefur ekki stig til FedEx-bikarsins. Hann er einn þriggja kylfinga sem fengu sérstakt boð á mótið, ásamt löndum sínum Rickie Fowler og Gary Woodland. Alls taka 20 kylfingar þátt.
Endurkoma Woods kemur í kjölfar þess að hann samþykkti í september fimm ára akstursbann í tengslum við mál sitt vegna gáleysislegs aksturs.
Í apríl var hann handtekinn í Flórída og ákærður fyrir akstur undir áhrifum eftir að hafa ekið utan í vörubíl og oltið bíl sínum. Við leit fundust einnig tvær hvítar töflur í vasa hans sem reyndust vera hýdrókódón, ópíóíðalyf sem notað er við verkjum.
Í kjölfarið tók Woods sér hlé frá golfi til að leita sér meðferðar. Lögmaður hans lýsti meðferðinni sem umfangsmikilli og einstaklingsmiðaðri, með áherslu á læknisfræðilega aðstoð.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗