Bilun á samskiptakerfi NSA hefur ekki áhrif á Íslandi
CNN greindi fyrir skömmu frá samskiptabilun hjá NSA, Þjóðaröryggisstofnun Bandaríkjanna. Enn sem komið er bendir ekkert til þess að um netárás sé að ræða, og að sögn Magna R. Sigurðssonar, forstjóra CERT-IS. hefur bilun á kerfinu ekki áhrif til Íslands. Samsett mynd/Ljósmynd/Aðsend/Colorbox
Út frá þeim upplýsingum sem að svo stöddu liggja fyrir ættu Íslendingar ekki að hafa áhyggjur af bilun á háleynilegu samskiptaneti sem Þjóðaröryggisstofnun Bandaríkjanna, NSA, notar til innri miðlunar upplýsinga, að mati Magna R. Sigurðssonar, forstjóra netöryggissveitarinnar CERT-IS.
CNN greindi frá biluninni nú síðdegis og vitnaði í sex heimildarmenn. Enn sem komið er bendir ekkert til þess að um netárás sé að ræða og að sögn Magna hefur bilun á kerfinu ekki áhrif til Íslands.
„Þetta er náttúrulega innra net hjá NSA sem er eingöngu notað af starfsmönnum NSA til að miðla upplýsingum sín á milli,“ segir hann í samtali við mbl.is.
„Þetta hefur engin áhrif þannig séð, engin óbein áhrif til Íslands allavega á þessu stigi, þótt lítið sé komið í ljós. Samkvæmt því sem við sjáum er um bilun að ræða, ekki netárás, og við erum ekki með neinar tengingar hér á Íslandi beint við þetta kerfi.“
Engin sönnun fyrir netárás
Er þá ekki ástæða til þess að hafa áhyggjur, ef í ljós kemur að um netárás er að ræða, af því að árásageta tölvuþrjóta sé komin á það stig að hún geti ráðist á svona vel varið kerfi?
„Það er ekkert, allavega sem enn hefur komið fram, sem bendir til þess að þarna sé um að ræða netárás, og í þeim umfjöllunum sem komnar eru fram er talað um bilun en ekki netárás,“ segir hann.
„Það er allavega engin sönnun fyrir því að þetta sé netárás.“
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗