Fækka akreinum í Borgartúni

Þrengt er að umferð í Borgartúni.

Þrengt er að umferð í Borgartúni. Ljósmynd/Aðsend

Þrengt verður að bílaumferð um Borgartún til og frá Snorrabraut að Þórunnartúni tímabundið. Er það gert vegna framkvæmda við Borgartún 1–3.

Akreinum verður fækkað í eina meðan á framkvæmdum stendur. Verið er að reisa hótel á staðnum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. 

Verktakanum Eykt ehf verið verið veitt leyfi til að nota akreinina, sem lokað verður, til að fylla upp í skurð og ganga frá svæðinu. Leyfið gildir til 21. desember. 

Kort/Aðsent

Ganga frá óvörðum rafmagnsstreng

Þar að auki verður að ganga frá óvörðum 132 kW rafmagnsstreng meðfram húsinu. Það er gert í samstarfi við Veitur, þar sem sérstakar öryggiskröfur gilda um verkið.

Tímastýrð umferðaljós stýra umferð úr gagnstæðum áttum um framkvæmdasvæðið og aðgengi að bílastæðum við Borgartún milli umferðaljósanna verður lokað.

Vinstri beygja frá Guðrúnartúni og Þórunnartúni inn á Borgartún er óheimil á meðan á framkvæmdum stendur. Hjáleið verður til staðar fyrir gangandi vegfarendur.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅