Akureyringar mega ekki láta renna í pottinn
Neyðarstjórn Norðurorku er í viðbragðsstöðu vegna hitaveitunnar á Akureyri. Staðan í birgðageymum bæjarins hefur verið fyrir neðan öryggismörk síðan í gærkvöldi.
Unnið hefur verið að því í dag að bæta stöðuna en staðan er viðkvæm og lítið má út af bregða að því er fram kemur í tilkynningu frá Norðurorku.
Þar segir enn fremur að vinna við að bæta stöðuna haldi áfram eins lengi og þarf.
„Við Mímisbraut er olíuketill sem er nýttur í neyð og unnið er að því að gangsetja hann. Ketillinn hitar upp bakrásarvatn og skilar því heitu inn á geymana. Markmiðið er að hann verði í gangi í sem skemmstan tíma til að lágmarka olíunotkun,“ segir í tilkynningu.
Kuldakastið síðustu daga hefur valdið því að notkun á heitu vatni hefur aukist umfram framleiðslugetu.
Um fimm stiga frost hefur verið á Akureyri í dag og er útlit fyrir svipað mikinn kulda næstu daga.
Stórnotendur dragi úr notkun
Hefur Norðurorka farið þess á leit við stórnotendur að þeir dragi úr notkun á heitu vatni eins og kostur er.
Til dæmis hefur verið skrúfað fyrir upphitun íþróttavalla í bænum.
Íbúar eru einnig beðnir um að hugsa vel um nýtingu á heitu vatni á heimilum og vinnustöðum.
Góð ráð eru að loka gluggum, draga úr innspýtingu í snjóbræðslukerfi eins og hægt er og stilla ofnakerfi á þann hátt að nýting sé sem best. Auk þess eru þeir notendur sem hafa heita potta beðnir um að láta ekki renna í þá.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗