Þakkar guði fyrir að skallinn fór ekki verr

Zidane skallar Materazzi í úrslitaleik HM árið 2006.

Zidane skallar Materazzi í úrslitaleik HM árið 2006. AFP

Marco Materazzi, fyrrverandi varnarmaður ítalska knattspyrnulandsliðsins, segir að andlát Jesús de Miguel hafi fengið hann til að hugleiða hugsanlegar afleiðingar skallans sem Zinedine Zidane gaf honum í úrslitaleik HM 2006.

„Andlát Jesús de Miguel fékk mig til að þakka Guði fyrir að ekkert alvarlegt gerðist,“ sagði hann við Gazzetta dello Sport. „Hvað ef þetta hefði komið fyrir mig?“

De Miguel lést eftir árekstur við markvörðinn Jesús Owono í leik í spænsku 2. deildinni fyrr í þessum mánuði.

Materazzi sagðist jafnframt enn vera opinn fyrir sáttum við Zidane, sem var rekinn af velli fyrir skallann áður en Ítalía vann úrslitaleikinn í vítaspyrnukeppni.

Hann fullyrti að þeir hefðu tekist í hendur á hóteli í Mílanó árið 2010, en Zidane gaf lítið fyrir það.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅