United sagt að gleyma því að gera tilboð í janúar
Newcastle United ætlar ekki að hlusta á tilboð í enska landsliðsbakvörðinn Lewis Hall þegar félagaskiptaglugginn opnar í janúar.
Þetta kemur fram í frétt The Telegraph.
Hall, sem er 22 ára, hefur verið orðaður við Manchester United og er talið að félagið gæti endurvakið áhuga sinn á leikmanninum á næstu vikum.
Forráðamenn Newcastle hafa hins vegar tekið skýra afstöðu og vilja ekki missa varnarmanninn um mitt tímabil.
Hall er vinstri bakvörður sem getur einnig leikið framar á vellinum og hefur vakið athygli fyrir frammistöðu sína í ensku úrvalsdeildinni.
Manchester United hefur verið að skoða möguleika á að styrkja varnarleik sinn.
Samkvæmt fréttinni verður þó erfitt fyrir United að fá Hall í janúar, jafnvel þótt félagið leggi fram hátt tilboð.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗