Bilun á samskiptakerfi hefur ekki áhrif á Íslandi
Fyrir skömmu síðan greindi CNN frá biluninni og vitnaði í sex heimildarmenn. Enn sem komið er bendir ekkert til þess að um netárás sé að ræða, og að sögn Magna hefur bilun á kerfinu ekki áhrif til Íslands. Samsett mynd/Ljósmynd/Aðsend/Colorbox
Út frá þeim upplýsingum sem að svo stöddu liggja fyrir ættu Íslendingar ekki að hafa áhyggjur af bilun á háleynilegu samskiptaneti sem Þjóðaröryggisstofnun Bandaríkjanna, NSA, notar til innri miðlunar upplýsinga, að mati Magna R. Sigurðssonar, forstjóra netöryggissveitarinnar CERT-IS.
CNN greindi frá biluninni nú síðdegis og vitnaði í sex heimildarmenn. Enn sem komið er bendir ekkert til þess að um netárás sé að ræða og að sögn Magna hefur bilun á kerfinu ekki áhrif til Íslands.
„Þetta er náttúrulega innra net hjá NSA sem er eingöngu notað af starfsmönnum NSA til að miðla upplýsingum sín á milli,“ segir hann í samtali við mbl.is.
„Þetta hefur engin áhrif þannig séð, engin óbein áhrif til Íslands allavega á þessu stigi, þótt lítið sé komið í ljós. Samkvæmt því sem við sjáum er um bilun að ræða, ekki netárás, og við erum ekki með neinar tengingar hér á Íslandi beint við þetta kerfi.“
Engin sönnun fyrir netárás
Er þá ekki ástæða til þess að hafa áhyggjur, ef í ljós kemur að um netárás er að ræða, af því að árásageta tölvuþrjóta sé komin á það stig að hún geti ráðist á svona vel varið kerfi?
„Það er ekkert, allavega sem enn hefur komið fram, sem bendir til þess að þarna sé um að ræða netárás, og í þeim umfjöllunum sem komnar eru fram er talað um bilun en ekki netárás,“ segir hann.
„Það er allavega engin sönnun fyrir því að þetta sé netárás.“
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗