„Heimatilbúið klúður“ Viðreisnar
Össur Skarphéðinsson spyr hver hefði getað trúað því að Viðreisn yrði veikasti hlekkurinn í núverandi stjórnarsamstarfi. mbl.is/Eggert Jóhannesson
„Hver hefði trúað því að Viðreisn yrði veikasti hlekkurinn í þessu stjórnarsamstarfi? Þar eru brotin öll lögmál um tengsl forystu og almennra þingmanna ef marka má frásögn Ingvars og Jóns Gnarr, raunar einnig Pawels. Heimatilbúið klúður, en gæti reynst örlagaríkt.“
Þetta ritar Össur Skarphéðinsson fyrrverandi utanríkisráðherra í athugasemd við Facebook-færslu Heimildarinnar sem deilir frétt sinni um brotthvarf Ingvars Þóroddssonar þingmanns úr Viðreisn í gær.
Ráðherrann fyrrverandi hefur þó ekki lokið máli sínu og ritar aðra færslu í fjörugum umræðum í þræðinum þar sem hann kveðst höfundur hugtaksins „ráðherraræði“ og segist helst sjá dæmi um það nú á dögum í framkomu Viðreisnar gagnvart eigin þingmönnum „sem í geri aðstoðarmanna og starfsmanna þingflokksins virðast aukaleikarar“.
„Allt vald spillir að lokum“
Kveðst hann þó fullyrða að ráðherraræði nú sé ekki líkt því sem verið hafi á tíma Davíðs Oddssonar í ráðherraembætti sem hann fyrr í færslunni segir hafa verið skýrasta dæmið um hugtakið.
„Hitt er svo annað, að allt vald spillir að lokum, og þeim sem fara lengi með mikið vald, hættir til að fara ekki vel með það. Mér sýnist þó núverandi stjórn ekki komin að neinu verulegu leyti út á þann hála ís. En hvað veit ég,“ skrifar Össur Skarphéðinsson að lokum.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗