Ingvar átti fund með Þórunni
Ingvar Þóroddsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, og Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, áttu stuttan fund fyrir skömmu þar sem þau ræddu ásakanir þess fyrrnefnda um að forseti hefði lekið upplýsingum um vistaskipti hans á þingi í gær.
Ingvar segir að Þórunn hafi ekki gert sér grein fyrir því að málið væri á trúnaðarstigi, enda þyrfti að tilkynna skrifstofu þingsins um vistaskiptin. Eitthvað sem Ingvar hafði sjálfur ekki gert sér grein fyrir. Hann vill þó ekki ásaka neinn á skrifstofunni um að hafa lekið upplýsingunum.
„Við ræddum saman og mér fannst það gott samtal og málinu er lokið af minni hálfu,“ segir Ingvar í samtali við mbl.is.
Hann kvaddi sér hljóðs við upphaf þingfundar í dag þar sem hann sakaði Þórunni um að hafa lekið því að hann hygðist segja sig úr Viðreisn og færa sig yfir í Sjálfstæðisflokkinn, áður en hann náði sjálfur að upplýsa fólk um ákvörðun sína. Sagðist hann miður sín vegna þessa. Hann er hins vegar sáttur við skýringar Þórunnar.
„Mér fannst mikilvægt að koma því á framfæri að ég væri miður mín yfir því að fólk heyrði þetta annars staðar en frá mér,“ segir Ingvar.
Hann gerir sér hins vegar grein fyrir því að orðrómur hafi kvisast út um að hann hygðist færa sig yfir í Sjálfstæðisflokkinn, enda hefði það ekki verið leyndarmál að hann væri ósáttur innan Viðreisnar.
Hann hefði þó sjálfur viljað tilkynna fólki um ákvörðun sína þegar hún hafði verið tekin.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗