Móðir æf yfir því sem hún fann í barnadeildinni í Primark: „Þetta er ekki viðeigandi!“
Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 17. nóvember 2026 16:30
Phoebe Ryan. Samsett mynd/Instagram/Getty
Móðir hefur vakið miklar umræður á samfélagsmiðlum eftir að hún vakti athygli á flík sem hún fann í barnadeildinni í stórversluninni Primark. Primark er vinsæll áfangastaður kaupþyrstra Íslendinga erlendis en þar má finna ýmis föt á mjög sanngjörnum kjörum.
Phoebe Ryan, sem er 28 ára móðir, var að versla föt á son sinn og dóttur vinkonu sinnar í Primark í Walsall á Englandi nýverið þegar hún kom auga á rautt jólapils. Ákvað hún að taka upp myndband á TikTok þar sem hún fer mikinn í gagnrýni á verslunarkeðjuna.
„Primark, hvers vegna í fjandanum eruð þið að selja svona örstutt og efnislítið pils á börn?,“ segir hún við myndbandið.
Skjáskot/TikTok
Samkvæmt vörulýsingu er pilsið ætlað stúlkum á aldrinum 1 til 9 ára og á það að ná niður fyrir mitt læri.
Phoebe telur flíkina óviðeigandi fyrir svo ung börn.
„Þetta er ekki viðeigandi! Pilsið er of stutt! Það væri ekkert athugavert við það ef fullorðin manneskja gengi í svona pilsi en mér finnst þetta of lítið pils fyrir barn.“
Myndi ekki kaupa svona pils á dóttur sína
Mikið af athugasemdum birtust við myndbandið hennar og svaraði hún nokkrum þeirra.
„Margir hafa skrifað í athugasemdum að pilsið nái niður að hnjám á börnunum þeirra. Ef börnin væru í sokkabuxum og stuttbuxum undir pilsinu gæti það verið í lagi, en það gera það ekki allir!“
Phoebe á sjálf ekki dóttur en ef svo væri myndi hún ekki kaupa svona pils.
„Ég var að skoða föt fyrir dóttur vinkonu minnar. Ef ég ætti sjálf dóttur myndi ég ekki leyfa henni að ganga í þessu því mér finnst það óviðeigandi.“
Myndband Phoebe hefur fengið meira en 110 þúsund áhorf og vakið töluverðar deilur. Margir taka undir gagnrýni hennar en aðrir telja hana gera úlfalda úr mýflugu.
„Ég bjóst alls ekki við að myndbandið myndi vekja svona mikla athygli eða að það myndu skapast svona miklar deilur. Margir eru sammála mér en aðrir spyrja hvers vegna ég sé að gera þetta eitthvað kynferðislegt,“ segir hún. Hún hafnar því að hafa sýnt sérstaklega stutt pils.
„Fólk hélt því fram að ég hefði sýnt pilsið í lítilli stærð til að láta það virðast styttra. En þetta er nú einu sinni mínípils. Jafnvel í stærri stærðunum var það jafn stutt.“
„Ekki kaupa þetta þá!“
Undir myndbandinu hafa skapast líflegar umræður.
„Guð minn góður, fólk virðist geta fundið eitthvað að öllu. Ekki kaupa þetta þá! Þetta er ekki þitt vandamál!,“ segir í einni athugasemdinni.
Önnur móðir bendir á að pilsið sé ekki jafn stutt og það virðist við fyrstu sýn.
„Ég skil hvað þú átt við en dóttir mín á nákvæmlega þetta pils og það nær næstum niður að hnjám á henni. Það lítur út fyrir að vera agnarsmátt en er alls ekki mínípils þegar lítið barn er komið í það.“
Talsmaður Primark hefur tjáð sig um málið og segir að fyrirtækið leggi áherslu á fjölbreytt vöruúrval fyrir fjölskyldur.
„Við viljum að fjölskyldur geti fundið vörur sem þeim líkar á verði sem þær ráða við. Þess vegna bjóðum við upp á fjölbreytt úrval af ungbarna- og barnafatnaði, með mörgum mismunandi sniðum og valkostum.“
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗