Frábærar fréttir fyrir Englandsmeistarana

Declan Rice hefur spilað frábærlega með Arsenal.

Declan Rice hefur spilað frábærlega með Arsenal. AFP/Filippo Monteforte

Lykilmennirnir Declan Rice, Jurrien Timber og markvörðurinn David Raya eru allir að skrifa undir nýja samninga við Englandsmeistara Arsenal í fótbolta.

Hinn virti miðill The Athletic greinir frá þessu en leikmennirnir þrír hafa allir gegnt lykilhlutverkum hjá liðinu á undanförnum árum.

Rice, sem hefur verið einn besti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar, skrifar undir nýjan samning sem gildir til sumarsins 2031. Ekki kemur fram hversu langir samningar Timbers og Raya verða.

Allir þrír gengu til liðs við Arsenal sumarið 2023 og hafa síðan þá verið mikilvægir hlekkir í liðinu sem varð Englandsmeistari í vor.

Arsenal er í afar góðri stöðu í ensku úrvalsdeildinni um þessar mundir. Liðið situr á toppi deildarinnar með 27 stig eftir tíu umferðir og hefur fimm stiga forskot á Brighton sem er í öðru sæti.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Enski boltinn,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅