„Þetta er mögulega mesti brandarinn“
Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, þingmaður Miðflokksins, segir raunheimarof hafa orðið. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, þingmaður Miðflokksins, segir veruleikafirringu ríkisstjórnarinnar slíka að hún kenni stjórnarandstöðunni um eigin ákvarðanir í efnahagsmálum. Hún segir ríkisstjórnina ekki ráða við verkefnið og telur réttast að hún láti af störfum.
Þetta kom fram í ræðu Nönnu á Alþingi í dag í umræðum um störf þingsins, þar sem hún svaraði ummælum Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra frá því í gær um að henni hugnaðist ekki hagspeki stjórnarandstöðunnar.
„Dagurinn í gær var upplýsandi og sýndi að ríkisstjórnin virðist alveg týnd og ég held að það hafi orðið endanlega ljóst að hún ráði ekki við verkefnið,“ sagði Nanna.
Hélt fyrst að þetta væri grín
Nanna vísaði til þess að Kristrún hefði hafnað því að taka upp hagspeki stjórnarandstöðunnar og lýst henni þannig að hún fæli meðal annars í sér aukin ríkisútgjöld, minni tekjur ríkissjóðs, meiri halla og aukin vaxtagjöld.
Nanna sagði lýsinguna skjóta skökku við enda væru þetta, að hennar mati, einmitt afleiðingar efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar sjálfrar.
„Fyrst hélt ég að um grín væri að ræða því allir punktarnir áttu það sameiginlegt að vera aðgerðir ríkisstjórnarinnar sjálfrar í efnahagsmálum.“
Hún hafnaði því að stjórnarandstaðan vildi rýra tekjur ríkissjóðs og sagði hægt að auka tekjur án þess að leggja sífellt auknar álögur á heimilin.
Þá gagnrýndi hún forsætisráðherra fyrir að saka stjórnarandstöðuna um að vilja auka ríkisútgjöld.
„Þetta er mögulega mesti brandarinn, vitandi að þessi ríkisstjórn byrjaði á að auka útgjöld meira milli ára en nokkur önnur ríkisstjórn hefur gert,“ sagði Nanna.
Eigi að kasta inn handklæðinu
Nanna sagði jafnframt ríkisstjórnina halda áfram að bæta við skuldir ríkissjóðs og lýsti áhyggjum af því að uppfærð fjárlög yrðu ekki hallalaus þegar ný efnahagsspá lægi fyrir.
„Raunheimarofið er sem sagt orðið slíkt að hæstvirtur forsætisráðherra kennir stjórnarandstöðunni um sínar eigin slæmu ákvarðanir.“
Að lokum hvatti hún ríkisstjórnina til að viðurkenna mistök sín í stað þess að kenna öðrum um stöðuna.
„Ég held að þessi ríkisstjórn ætti að henda inn handklæðinu fremur en að halda áfram að svíkja kosningaloforðin og kenna öðrum um það.“
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗