Heiða Óla eignaðist þriðja barnið

Erlendur Kári Kristjánsson og Aðalheiður Ýr Ólafsdóttir eiga núna þrjú börn. Skjáskot/Instagram

Aðalheiður Ýr Ólafsdóttir eða Heiða Óla eins og hún er kölluð er búin að eignast sitt þriðja barn með eiginmanni sínum, Erlendi Kára Kristjánssyni. Aðalheiður er einkaþjálfari en líka eigandi Hlöðunnar á Álftanesi ásamt manninum sínum. 

Aðalheiður greindi frá komu dóttur sinnar á Instagram en stúlkan kom nokkrum örfáum dögum fyrir settan dag og gekk allt eins og í sögu. 

„Allt gekk eins og í sögu og erum við fjölskyldan í skýjunum með nýju prinsessuna okkar,“ skrifaði Aðalheiður á Instagram og deildi fallegum myndum af fjölskyldunni. 

Uppeldisráð Heiðu

Heiða deildi góðum uppeldisráðum á mbl.is fyrir nokkrum árum þegar hjónin áttu bara eitt barn. Auk þess að leggja áherslu á rólegt uppeldi eru dýr og náttúra stór hluti af uppeldinu.

„Ég reyni að klára allt áður en ég sæki Ólaf Elí í leikskólann svo ég geti einbeitt mér að því að sinna bara honum eftir leiksskóla. Við leikum saman úti eða inni eða slöppum bara af. Sýni honum hvernig ýmis verk eru unnin og leyfi honum að taka þátt og hjálpa til. Þessi tími með honum kemur ekki aftur,“ sagði Heiða meðal annars í viðtalinu.

Smartland óskar hjónunum til hamingju með barnalánið.

内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅