Klár í að fara frá Arsenal - Hefur misst traust hjá Arteta
Martin Zubimendi, miðjumaður Arsenal, er sagður opinn fyrir því að yfirgefa Lundúnafélagið vegna skorts á tækifærum í byrjunarliðinu.
Samkvæmt spænska miðlinum AS eru bæði Chelsea og Atlético Madrid áhugasöm um að fá Spánverjann til liðs við sig.
Zubimendi, sem er 27 ára, hefur ekki fengið þann spilatíma sem hann vonaðist eftir hjá Arsenal og er því farinn að íhuga framtíð sína.
Chelsea fylgist grannt með stöðu miðjumannsins og gæti reynt að lokka hann yfir til sín.
Atlético Madrid er einnig sagt hafa áhuga á að fá Zubimendi aftur til Spánar.
Ekki liggur fyrir hvort Arsenal sé tilbúið að selja leikmanninn eða hversu háa fjárhæð félagið myndi vilja fá fyrir hann.
Framtíð Zubimendi gæti því orðið áhugavert félagaskiptamál á næstu mánuðum.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗