Segja Matvælastofnun að endurskoða verklag sitt eftir að sending með fæðubótarefni var stöðvuð

Aðili sem ætlaði að flytja inn fæðubótarefnið Berberine HCL til einkanota lagði fram stjórnsýslukæru til atvinnuvegaráðuneytisins
eftir að póstsending sem innihélt meðal annars efnið var stöðvuð. Ráðuneytið hefur nú úrskurðað að kærunni skuli vísað frá en
beinir því til Matvælastofnunar að endurskoða verklag sitt í málum af þessu tagi. Segir ráðuneytið raunar að verklag stofnunarinnar 
samræmist hvorki tollalögum né leiðbeiningarskyldu stjórnvalda.

Krafðist kærandinn þess að heimiluð yrði tollafgreiðsla á Berberine HCL í gegnum almennar tollstöðvar en ekki einungis í gegnum
tollstöðvar flugvalla. Þess var krafist að efni sem ekki væri bannað fengist tollafgreitt í því magni sem svaraði til skynsamlegra al-
mennra einstaklingsnota.

Leyfi

Í apríl 2025 lagði kærandinn fram umsókn á þjónustuvef Matvælastofnunar vegna póstsendingar einstaklinga með leyfisskyldum
vörum. Í umsókninni kom fram að sendingin hefði verið stöðvuð vegna Berberine HCL. Kærandi upplýsti að varan væri ætluð til einkanota og hélt því fram að hún væri til sölu á Íslandi og leyfð um allan heim. Matvælastofnun sagði kærandanum að sendingin hefði verið stöðvuð af tollgæslu þar sem í vörunni væri Berberine HCL sem væri óleyfilegt hérlendis. Markaðsaðilum væri ekki heimilt að markaðssetja óleyfilega vöru til landsins og Matvælastofnun hefði ekki heimild til að veita stakar undanþágur í slíkum málum. 

Óskaði kærandinn eftir leiðbeiningum frá Matvælastofnun um hvernig hann gæti fengið undanþágu til að nýta efnið til einkaneyslu.
Var það þá ítrekað að markaðsaðilum væri ekki heimilt að selja vöruna til neytenda á Íslandi og því væri innflutningur stöðvaður.
Það væri hins vegar ekki bannað að eiga efnið eða ferðast með það og persónuleg not fólks féllu ekki undir eftirlit Matvælastofnunar. Þá var vísað til þess að Lyfjastofnun svaraði spurningum um lyf og undanþáguheimildir varðandi þau.

Vildi kærandinn þá meina að honum hlyti að vera heimilt að eiga efnið og nýta það til einkanota. Sagðist hann áður hafa notað
efnið og það hafi reynst honum vel.

Matvælastofnun tjáði þá kærandanum að stofnunin hefði enga aðkomu að sendingunni, meðhöndlun hennar eða stöðvun.
Sendingin hafi verið stöðvuð af tollyfirvöldum og Matvælastofnun hefði ekki heimild til að veita undanþágur í slíkum málum. Þá hafi
kæranda verið veittar ríflegar upplýsingar og leiðbeiningar. Stjórnvaldsákvarðanir tollyfirvalda þyrfti að kæra á þann hátt sem
tollyfirvöld tilgreindu.

Vildi kærandinn meina að um væri að ræða kerfislega þversögn. Heimilt væri að fara í gegnum tollskoðun á Keflavíkurflugvelli
með efnið í magni sem teldist til einkanota en ekki sama magn í gegnum tollskoðun í Hafnarfirði. Þá gætu 1-3 smásölueiningar
ekki verið skilgreindar sem markaðssetning eða vara til endursölu. Þá óskaði kærandinn eftir upplýsingum um hver gerði þá kröfu
til tollyfirvalda að varan væri stöðvuð.

Matvælastofnun svaraði honum með þeim orðum að skýrt væri að markaðssetning óöruggra eða óleyfilegra matvæla til landsins
væri ekki heimil. Markaðsaðilum væri ekki heimilt að senda til landsins ómælt magn af óleyfilegri vöru, í smærri sendingum beint til
neytenda. Evrópusambandið liti á slíkt sem markaðssetningu yfir landamæri. Afstaða stofnunarinnar stæði og vísað væri til þess
að tollyfirvöld þyrftu að svara fyrir eigin stjórnsýsluákvarðanir. Efnið teldist nýfæði og hafi ekki fengið leyfi sem slíkt. Í því samhengi
vísaði stofnunin til lista á heimasíðu sinni.

Misræmi

Í kjölfar þessara samskipta sinna við Matvælastofnun lagði umræddur aðili fram kæru til atvinnuvegaráðuneytisins. Vildi kærandinn
meina að misræmi væri á milli vinnulags tollyfirvalda annars vegar og þeirra krafna sem Matvælastofnun gerði hins vegar, einkum
hvað varðaði meðferð efnisins Berberine HCL. Vildi hann meina að efnið væri leyfilegt hér á landi til einkanota. Ítrekaði hann að
magnið í sendingunni hefði verið það lítið að það gæti ekki talist duga til endursölu eða almennrar dreifingar.

Í andsvörum Matvælastofnunar kom fram að Berberine væri á bannlista stofnunarinnar. Tollgæslan hefði eftirlit með
póstsendingum sem bærust til landsins. Þá væri sendingar sem innihéldur vörur sem lytu eftirliti Matvælastofnunar og innihéldu
óleyfileg efni eða væru háðar sérstökum innflutningsskilyrðum stöðvaðar af tollgæslunni. Benti stofnunin einnig á að engin
stjórnvaldsákvörðun hefði verið tekin í málinu og því ætti að vísa kærunni frá.

Verklag

Atvinnuvegaráðuneytið segir í sinni niðurstöðu að ljóst sé að Matvælastofnun hafi verið að svara fyrirspurnum kærandans sem hafi
ekki lagt fram neina umsókn eða beiðni sem kallaði á ákvörðun af hálfu stofnunarinnar. Af þeim sökum verði að vísa kærunni frá.

Ráðuneytið gerir hins vegar sérstaka athugasemd við verklag stofnunarinnar í málum af þessu tagi. Bendir ráðuneytið á að
samkvæmt tollalögum eigi aðili sem hyggist flytja inn sendingu sem stöðvuð hafi verið rétt á því, óski hann þess, að tekin verði
ákvörðun í máli hans um hvort innflutningurinn sé heimill, og að slík ákvörðun sé stjórnvaldsákvörðun sem kæranleg sé til æðra
stjórnvalds á viðkomandi málefnasviði.

Í þessu máli hafi engin slík ákvörðun hafi verið tekin þrátt fyrir að sendingin hafi verið stöðvuð og þrátt fyrir að kærandinn hafi sérstaklega óskað eftir leiðbeiningum um hvort og þá hvernig hann gæti fengið heimild til innflutningsins.

Gerir ráðuneytið einnig athugasemdir við að Matvælastofnun hafi ekki sinnt leiðbeiningarskyldu sinni með því að benda kærandanum ekki á að hann gæti óskað eftir ákvörðun stofnunarinnar um innflutning vörunnar og að slík ákvörðun væri kæranleg til ráðuneytisins. Þess í stað hafi honum verið tjáð að stofnunin veitti ekki undanþágur, að hún hefði enga aðkomu að sendingunni og að stjórnvaldsákvarðanir tollyfirvalda þyrfti að kæra með þeim hætti sem tollyfirvöld tilgreindu. Að þessu leyti hafi meðferð
Matvælastofnunar á erindi kærandans ekki verið í samræmi við stjórnsýslulög.

Segir ráðuneytið ljóst af gögnum málsins að viðtakendum póstsendinga sem stöðvaðar séi vegna innihaldsefna á lista
Matvælastofnunar sé almennt ekki leiðbeint um að þeir geti óskað eftir ákvörðun stofnunarinnar um innflutninginn og kært hana. Á
vef stofnunarinnar komi fram að hún hafi enga heimild til að veita undanþágur og að viðtakandi þurfi því að óska eftir en-
dursendingu eða förgun, og í umsögn sinni til ráðuneytisins byggi stofnunin á því að hún taki ekki stjórnvaldsákvarðanir um
stöðvun slíkra sendinga. Ráðuneytið segir að sú framkvæmd samrýmist illa þeirri verkaskiptingu sem tollalög geri ráð fyrir og
leiðbeiningarskyldu stjórnvalda. Ráðuneytið beinir því til Matvælastofnunar að lokum að endurskoða verklag sitt og leiðbeiningar,
þegar kemur að sendingum sem eru stöðvaðar.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅