Draga erlent flutningaskip til hafnar

Varðskipið Freyja dregur nú Wilson Hansa til hafnar eftir stýrisbilun í flutningaskipinu. Ljósmynd/Landhelgisgæslan

Varðskipið Freyja dregur nú erlenda flutningaskipið Wilson Hansa til hafnar á Akureyri eftir að stýrisbilun kom upp í skipinu þegar það var um 210 sjómílur austnorðaustur af Langanesi.

Samkvæmt tilkynningu á vef Landhelgisgæslunnar hafði áhöfn flutningaskipsins samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar og óskaði eftir aðstoð vegna stýrisvandræða. Í kjölfarið var áhöfn varðskipsins Freyju kölluð út og hélt varðskipið frá Siglufirði í gærmorgun.

Freyja kom að flutningaskipinu um klukkan fjögur í nótt og segir í tilkynningunni að vel hafi gengið að skjóta skotlínu yfir í flutningaskipið. Skömmu síðar hafi áhöfn Freyju lokið við að koma dráttartaug á milli skipanna.

„Ferðin hefur gengið vel og gert er ráð fyrir að Freyja komi með flutningaskipið til hafnar á Akureyri annað kvöld,“ segir að lokum í færslu Gæslunnar.

Um borð í Freyju.

Um borð í Freyju. Ljósmynd/Landhelgisgæslan

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅