Ver niðurstöðu nefndarinnar í umdeildu máli

Grímur Grímsson, þingmaður Viðreisnar, segir niðurstöðuna vel rökstudda.

Grímur Grímsson, þingmaður Viðreisnar, segir niðurstöðuna vel rökstudda. mbl.is/Karítas

Grímur Grímsson, þingmaður Viðreisnar, segir úrskurð kærunefndar útlendingamála um að fella úr gildi brottvísun albansks ríkisborgara vel rökstuddan. Þótt honum hrysi hugur við tilhugsunina um að einstaklingur sem grunaður er um kynferðisbrot gegn barni geti dvalið hér á landi verði ákvörðun um brottvísun að byggjast á fullnægjandi gögnum.

Þetta kom fram í máli Gríms á Alþingi þar sem hann fjallaði um úrskurðinn sem vakið hefur töluverða athygli undanfarna daga.

Eins og mbl.is greindi frá á föstudag felldi kærunefndin úr gildi ákvörðun Útlendingastofnunar um að vísa manninum úr landi og banna honum endurkomu í tólf ár.

Maðurinn hafði verið dæmdur fyrir manndráp í Albaníu og er jafnframt sakborningur í máli vegna gruns um kynferðisbrot gegn barni yngra en 15 ára hér á landi.

Afla þurfi frekari gagna

Grímur benti á að maðurinn hefði lokið afplánun vegna manndrápsins fyrir níu til tíu árum. Kærunefndin hefði meðal annars horft til þess að fimm ára tímamörk giltu um brottvísun á grundvelli erlendra refsidóma.

Þá hefðu ekki legið fyrir nægilega ítarleg gögn um kynferðisbrotamálið, sem væri enn á rannsóknarstigi.

„Úrskurður kærunefndar útlendingamála í þessu máli er vel rökstuddur,“ sagði Grímur.

Hann vísaði jafnframt til niðurstöðu nefndarinnar um að afla þyrfti frekari gagna áður en hægt væri að meta hvort háttsemi mannsins hér á landi teldist ógn við almannahagsmuni.

Að mati Gríms mátti skilja niðurstöðuna þannig að frekari upplýsingar um kynferðisbrotamálið gætu síðar skapað grundvöll fyrir brottvísun.

„Það er sannarlega svo að manni hrýs hugur við því að útlendingar sem grunaðir eru um kynferðisbrot gegn barni skuli vera áfram hér á landi,“ sagði Grímur.

Hann lagði þó áherslu á að ákvörðun um brottvísun yrði að byggjast á viðeigandi og nægilega skýrum gögnum sem að jafnaði lægju ekki fyrir fyrr en við útgáfu ákæru eða uppkvaðningu dóms.

Reglur settar til að vernda börn

Úrskurðurinn hefur sætt gagnrýni. Jón Pétur Zimsen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði í samtali við mbl.is að honum þætti skjóta skökku við að íslenskt samfélag nyti ekki vafans þegar metið væri hvort vísa ætti erlendum ríkisborgara úr landi vegna almannahagsmuna.

Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins, gagnrýndi niðurstöðuna einnig og spurði hvað einstaklingur þyrfti eiginlega að gera af sér til að honum yrði vísað úr landi.

Grímur sagði hins vegar mikilvægt að brottvísun byggðist á traustum lagalegum grundvelli. Hann vísaði jafnframt til þess að Alþingi hefði samþykkt lagabreytingar sem skýrðu heimildir yfirvalda til að bregðast við brotum erlendra ríkisborgara.

Með þeim væri verið að setja reglur til verndar borgurum landsins, ekki síst börnum.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅