Háleynilegt samskiptanet NSA liggur niðri
Að sögn heimildarmannanna liggja að svo stöddu engar vísbendingar fyrir um að netárás hafi átt sér stað. Ljósmynd/Colourbox
Samskiptanet sem Þjóðaröryggisstofnun Bandaríkjanna, NSA, notar til innri miðlunar upplýsinga með háu leyndarstigi liggur niðri. Þetta herma sex heimildarmenn CNN sem þekkja til málsins.
Netið nefnist NSA Net og gerir starfsfólki kleift að miðla leynilegum upplýsingum innan stofnunarinnar.
Að sögn heimildarmannanna liggja að svo stöddu engar vísbendingar fyrir um að netárás hafi átt sér stað.
Á meðan unnið er að því að átta sig á umfangi vandans hefur stofnunin skipulagt mætingu starfsfólks þannig að það komi til vinnu á mismunandi tímum, að sögn heimildarmannanna.
CNN hefur óskað eftir viðbrögðum NSA, að því er segir í umfjölluninni.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗