Norska tollgæslan varar við háskalegum vímudrykk

Drykkurinn „lean“, sem norska tollgæslan varar eindregið við og hefur sent landlækni og Kripos tilkynningu um, er meðal annars fluttur inn í venjulegum gosflöskum, en með öðru innihaldi. Drykkurinn inniheldur ópíóðalyfið kódein auk sljóvgandi lyfsins prómetazíns og getur reynst stórhættulegur. Ljósmynd/Norska tollgæslan

Norska tollgæslan varar eindregið við vímugjafanum „lean“ í drykkjarformi sem hún hefur lagt hald á undanfarið, blöndu af hóstasafti og gosi sem þekkt hefur verið undir nöfnum á borð við „Purple Drank“, „Sizzurp“ eða „Dirty Sprite“.

Drykkurinn inniheldur að sögn kunnugra, sem norska ríkisútvarpið NRK ræðir við, ópíóðaefnið kódein auk hins sterka sljóvgandi lyfs prómetazíns og segir Trygve Kalland, deildarstjóri upplýsinga- og greiningardeildar norsku tollgæslunnar, að þarna séu komin efni sem enginn ætti að fá í sig.

„Neysla getur haft alvarlegar afleiðingar og fólk á það á hættu að taka of stóran skammt,“ er haft eftir deildarstjóranum í fréttatilkynningu frá tollgæslunni þar sem hann segir enn fremur að ungu fólki hætti einfaldlega til að líta á „lean“ sem hættulítinn partýdrykk. „Í raun er þetta ópíóíðablanda með alvarlegum aukaverkunum og hættu á ofskömmtun,“ segir Kalland.

Eingöngu gegn lyfseðli í Noregi

Norðmenn eru engan veginn vanir neyslu virku efnanna í drykknum saman þar sem þar í landi er hóstamixtúra, sem inniheldur þau bæði, ófáanleg til löglegra kaupa. Í Noregi fæst eingöngu saft sem inniheldur annað hvort efnið og þá gegn lyfseðli, en erlendis má víða kaupa hóstameðul sem innihalda þau bæði, svo sem í Bretlandi, og hefur tollgæsla nýverið lagt hald á fimm stórar sendingar af hráefnum til blöndunar drykkjarins, þrjár á flugvöllum í Austur-Noregi og tvær í póstsendingum.

Allar fimm sendingarnar komu frá Bretlandi.

Kódein er mjög ávanabindandi efni sem hægir á púlsi og er auk þess öndunarbælandi, í versta falli svo mjög að neytandinn geti farið í öndunarstopp, en auk þess getur neysla „lean“ valdið krömpum, ofskynjunum og skertri sjón.

Lítt þekkt uns nýverið

Vitnar tollgæslan norska í alþjóðlegar rannsóknir og kveður þær sýna að neytendur drykkjarsins séu einkum unglingar og ungmenni á aldrinum þrettán til 21 árs. „Lean“ hafi þar til síðasta hálfa árið verið tiltölulega lítt þekkt fyrirbæri í Noregi, en það sé nú að breytast.

Hefur tollgæslan sent norska landlæknisembættinu og rannsóknarlögreglunni Kripos tilkynningu vegna málsins og lýst þar áhyggjum sínum af þróuninni

„Þegar neytendahópurinn er svo ungur er mikilvægt að upplýsingar berist tímanlega. Við deilum því sem við vitum svo heilbrigðisyfirvöld og foreldrar geti verið viðbúin,“ segir Kalland deildarstjóri.

NRK

Adressa.no

TV2

Nettavisen

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅