Rooney íhugaði sjálfsvíg á hátindi ferilsins

Wayne Rooney.

Wayne Rooney. AFP/Glyn Kirk

Wayne Rooney, fyrrverandi fyrirliði enska landsliðsins í fótbolta og Manchester United, hefur sagt frá því að hann hafi glímt við mikla vanlíðan á sínum tíma hjá félaginu og jafnvel leitt hugann að sjálfsvígi.

Rooney ræddi erfiðleika sína í viðtali við Gabby Logan í hlaðvarpsþættinum Life at the Midpoint. Þar sagði hann frá því hvernig áfengisneysla og andleg vanlíðan höfðu mikil áhrif á líf hans utan vallar þegar elsti sonur hans, Kai, var enn ungabarn. BBC segir frá.

„Þegar ég var að drekka læsti ég mig inni á heimili mínu í tvo daga og drakk bara,“ sagði Rooney þegar hann var spurður um erfiðasta tímabil lífs síns.

Það sem gerði ástandið enn erfiðara var að Rooney var á sama tíma á hátindi ferils síns innan vallar. Hann hafði gengið til liðs við Manchester United frá Everton árið 2004 og varð síðar markahæsti leikmaður í sögu félagsins með 253 mörk í 559 leikjum.

„Ég átti mjög erfitt með að takast á við þetta allt saman. Eftir að hafa opnað mig við Coleen, eiginkonu mína, og móður mína vissi ég að ég þyrfti hjálp til að komast í gegnum þetta,“ sagði Rooney.

Átti erfitt með að viðurkenna vanlíðan

Hann viðurkenndi að hafa komist á þann stað að hann hefði hugleitt að svipta sig lífi.

„Ég vildi bara ekki vera í kringum neinn. Ég vildi ekki hitta fólk úti á götu eða fara í verslanir. Mér leið alltaf vel á fótboltavellinum en átti mjög erfitt með allt annað,“ sagði hann.

Rooney sagði jafnframt að hann hefði átt erfitt með að viðurkenna vanlíðan sína þar sem honum fannst það sýna veikleika.

„Maður vill ekki sýna veikleika og reynir því að fela hvernig manni líður. Ég vissi í hvaða stöðu ég var en það var erfitt að viðurkenna það. Mér fannst ég vera minni maður fyrir vikið,“ sagði hann.

Hann leitaði sér aðstoðar hjá sálfræðingi til að átta sig betur á líðan sinni.

„Þegar ég lít til baka var ég líklega á hátindi ferilsins, nýbúinn að eignast son og nýkvæntur. Þetta hefði átt að vera besti tími lífs míns en var það alls ekki. Þetta var líklega lægsti punkturinn,“ sagði Rooney.

Ómetanlegur stuðningur

Hann sagði eiginkonu sína hafa reynst sér ómetanlegur stuðningur á þessum tíma.

„Coleen hjálpaði mér gríðarlega mikið. Hún hefði getað yfirgefið mig, svo slæmt var ástandið, en hún stóð við bakið á mér og hjálpaði mér að komast í gegnum þetta.“

Rooney lék 120 landsleiki fyrir England og skoraði í þeim 53 mörk. Hann yfirgaf Manchester United árið 2017 eftir að hafa unnið fimm Englandsmeistaratitla, Meistaradeild Evrópu, Evrópudeildina, enska bikarinn og enska deildabikarinn þrisvar sinnum með félaginu.

Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á: Píeta samtökin, s. 1799, Hjálparsíma Rauða krossins, 1717, og netspjallið 1717.is, Upplýsingamiðstöð heilsugæslunnar, s. 1700, og netspjallið heilsuvera.is. Í neyð hringið í 112. Varðandi stuðning eftir missi í sjálfsvígi er bent á Upplýsingamiðstöð heilsugæslunnar, s. 1700, og netspjallið heilsuvera.is, Sorgarmiðstöð, s. 551-4141, og [email protected], síma Píeta samtakanna, 552-2218. Í neyð hringið í 112.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅