Apple erfiðast að eiga við
Vilhjámur Þorsteinsson tekur við verðlaunum Jónasar Hallgrímssonar á degi íslenskrar tungu í gær. Logi Einarsson ráðherra menningarmála færði honum gripinn. mbl.is/Karítas
Apple segir Vilhjálmur Þorsteinsson að sé erfiðasti tæknirisinn að eiga við þegar kemur að því að koma íslenskunni inn í kerfi þeirra. Vilhjálmur, sem er stofnandi Miðeindar, hlaut verðlaun Jónasar Hallgrímssonar fyrir framlag sitt til íslenskunnar í gær á sviði máltækni.
Íslensk stjórnvöld hrintu í gær, á degi íslenskrar tungu, af stað átaki til að fá íslensku inn í kerfi Apple.
„Við höfum átt mjög góð samtöl við flest þessi stóru tæknifyrirtæki, langflest þeirra hafa tekið okkur mjög vel og eru tilbúin til þess að hlusta á röksemdir um málstað minni tungumála og menningarsvæða í heiminum,“ segir Vilhjálmur.
Ekki á illvilja byggt
Þau finna til ákveðinnar samfélagsábyrgðar og átta sig á því að það verður að styðja þetta án þess að það sé endilega mjög hagkvæmt, sérstaklega ef þau fá í hendurnar öll gögn sem til þarf,“ segir Vilhjálmur sem hefur farið tvær utanlandsferðir í Kísildalinn með íslenskum stjórnmálamönnum.
Apple segir hann að sé erfiðasta fyrirtækið að eiga við þar.
„Ég held það byggi ekki á neinum illvilja. Það virðist vera mikil grundvallarstefna hjá Apple að þau ráði öllu og ritstýri sínum kerfum frá A til Ö. Þau virðast þá í prinsippinu eiga mjög erfitt með að taka við einhverju utan frá og fella það inn í sitt.“
Rætt er við Vilhjálm í Morgunblaðinu í dag.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗