Myndskeið: Lokahönd lögð á landsliðstreyjuna

Daníel Franz Davíðsson, markaðsfulltrúi HSÍ, kynnti sér vinnuna á bak við búninga íslensku landsliðanna í handknattleik í nýjasta innslagi Fólksins í boltanum í Handboltahöllinni.

Daníel heimsótti Þórarin og ræddi við starfsfólk um búningana. Þar fékk hann að skoða það sem fer fram áður en landsliðsfólkið klæðist treyjunum.

Hann fékk einnig að spreyta sig sjálfur við að merkja landsliðstreyju og fylgdist með því hvernig merki bakhjarla eru fest á búningana.

Innslagið má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅