Kokkalandsliðið eldar fyrir 110 gesti á HM
Kokkalandslið Íslands heldur af landi brott á fimmtudaginn til að taka þátt í heimsmeistaramótinu í matreiðslu, Culinary World Cup. Ljósmynd/Mummi Lú
Kokkalandslið Íslands heldur til Lúxemborgar fimmtudaginn 19. nóvember til að taka þátt í heimsmeistaramótinu í matreiðslu, Culinary World Cup. Fram undan eru tveir keppnisdagar þar sem margra mánaða æfingar og undirbúningur verða sett í próf.
Liðið keppir fyrst laugardaginn 21. nóvember í greininni Restaurant of Nations. Þar er verkefnið að framreiða þriggja rétta máltíð fyrir 110 gesti. Þriðjudaginn 24. nóvember tekur síðan við keppni í Chef’s Table.
Samkvæmt tilkynningu frá Klúbbi matreiðslumeistara hafa keppendur, þjálfarar og aðstoðarfólk lagt mikla vinnu í undirbúninginn og eru staðráðin í að gera sitt besta fyrir Íslands hönd. Þórir Erlingsson er forseti Klúbbs matreiðslumeistara og framkvæmdastjóri íslenska landsliðsins.
Þórir Erlingsson er forseti Klúbbs matreiðslumeistara og framkvæmdastjóri íslenska landsliðsins. Ljósmynd/Mummi Lú
Stór hópur að baki liðinu
Í tilkynningunni er vakin athygli á því umfangsmikla starfi sem liggur að baki þátttöku landsliðsins. Auk æfinga og þróunar keppnisrétta þarf að tryggja hráefni, búnað, aðstöðu og fjölmargt annað sem fylgir ferð á heimsmeistaramót.
Klúbbur matreiðslumeistara þakkar bakhjörlum, styrktaraðilum og samstarfsfyrirtækjum fyrir stuðninginn. Hann hafi meðal annars falist í fjárframlögum, hráefni, búnaði, þjónustu og sérfræðiþekkingu. Þá hafi félagsmenn lagt fram vinnu sína og reynslu, aðstoðað við æfingar og skipulagningu og hvatt liðið áfram.
„Án ykkar væri þetta ekki hægt. Það eru engar ýkjur, heldur einfaldlega staðreynd,“ segir í tilkynningunni.
Kokkalandslið Íslands með þjálfara frá vinstri: Georg Arnar Halldórsson þjálfari, Gabríel Kristinn Bjarnason, Bianca Tiantian Zhang, Aðalheiður Dögg Reynisdóttir, Jafet Bergmann Viðarsson, Hugi Rafn Stefánsson, Ísak Aron Jóhannsson fyrirliði, Andrés Björgvinsson, Wiktor Pálsson og Bjarni Ingi Sigurgíslason. Ljósmynd/Mummi Lú
Reynslan skilar sér heim
Klúbburinn leggur jafnframt áherslu á að ávinningurinn nái út fyrir keppnina sjálfa. Þekking og reynsla sem keppendur öðlast á alþjóðlegum vettvangi skili sér aftur inn í íslenskan veitingageira, til samstarfsfólks og komandi kynslóða matreiðslumanna.
Hægt verður að fylgjast með ferðalaginu, undirbúningnum og keppninni á Instagram-reikningi Kokkalandsliðs Íslands.
内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗

