Gæti sparað olíu og minnkað mengun

Áhöfnin á rannsóknaskipinu Árna Friðrikssyni græjar veiðafærin til mælinga.

Áhöfnin á rannsóknaskipinu Árna Friðrikssyni græjar veiðafærin til mælinga. Ljósmynd/Hafró/Cécile Dargentolle

Vísbendingar eru um að með því að skipta út flotkúlum á höfuðlínu botnvörpu fyrir segl sem viðhalda opnun vörpunnar megi draga úr orkunotkun við drátt á botnvörpunni minnka mengun í hafinu.

Auk þess að mæla áhrif breytinga á höfuðlínu botnvörpunnar var prófuð ný uppsetning fyrir myndavélakerfið FiskGreini. Ljósmynd/Hafró/Cécile Dargentolle


Þetta er meðal þess sem fram kom í rannsóknarleiðangri Hafrannsóknastofnunar 9. til 13. nóvember síðastliðinn á rannsóknarskipinu Árna Friðrikssyni.

Á vef Hafró kemur fram að leiðangurinn hafi verið hluti af Evrópuverkefninu MarineGuardian, sem Matís stýri.

Breyting sem reyndist vel

„Þetta var fyrri leiðangurinn af tveimur þar sem orkunotkun við að draga hefðbundna botnvörpu er mæld og borin saman við breyttar uppsetningar á vörpunni,“ segir á vefnum.

Að þessu sinni hafi orkunotkun verið mæld við drátt á óbreyttu hefðbundnu veiðarfæri, til að mynda grunn fyrir seinni mælingar, en þó hafi ein breyting verið prófuð.

„Flotkúlur á höfuðlínu voru að mestu teknar af og segl sett í staðinn til að halda opnun vörpunnar. Þessi einfalda breyting reyndist vel við þær aðstæður sem unnið var við og fyrstu niðurstöður benda til þess að varpan hafi verið léttari í drætti.“

Þá segir að á næsta ári verði prófaður búnaður sem á að draga úr snertingu botnvörpu við hafsbotn og um leið minnka olíunotkun við veiðar.

Þá kemur fram í umfjöllun Hafró að breytingar á veiðarfærum geti skipt máli víðar en í olíureikningnum.

Prófuðu líka myndavélakerfið FiskGreini

„Flotkúlur sem tapast af veiðarfærum eru algengar í rusli á fjörum hér á landi og hjá nágrannaþjóðum. Ef segl geta leyst flestar kúlurnar af hólmi gæti það bæði sparað olíu og dregið úr slíkri mengun.“

Um leið er sleginn sá varnagli að frekari prófanir með mismunandi gerðum varpa og við ólík veðurskilyrði þurfi áður en hægt sé að fullyrða að fullu um notagildið.

Þá kemur fram að í ferðinni hafi einnig verið prófað myndavélakerfið FiskGreinir, sem Hafrannsóknastofnun þrói í samvinnu við Stjörnu Odda.

„Kerfið greinir tegundir og mælir lengd fiska inni í vörpunni og gerir skipstjórnendum jafnframt kleift að sjá í rauntíma hvað berst í vörpuna.“

Prófuð hafi verið ný uppsetning á kapli á veiðarfærinu frá Hampiðjunni og hún reynst vel.

Mæld var olíunotkun við drátt á botnvörpunni og áhrif breytinga á uppsetningu. Ljósmynd/Hafró/Cécile Dargentolle


„Þessi leiðangur er grunnviðmið fyrir prófanir á nýrri gerð af hálfhringlaga fótreipi, Flow Gear frá Hampiðjunni. Verulegt magn gagna safnaðist og unnið verður úr þeim á næstu vikum. Niðurstöðurnar verða síðan bornar saman við gögnin úr næsta leiðangri,“ segir á vef Hafró.

Líka mælt í togurum Brims

Þá kemur fram að mælingarnar á Árna Friðrikssyni séu aðeins hluti af verkinu.

„Sambærileg gögn um orkunotkun verða einnig skráð um borð í togurum Brims, svo hægt sé að meta áhrifin við raunverulegar veiðar.“

Trackwell og Naust Marine eru sögð vinna að því að safna gögnunum saman og gera þau aðgengileg til greiningar.

„Samstarf Hafrannsóknastofnunar, Matís, Hampiðjunnar, Brims, Trackwell, Naust Marine og Stjörnu Odda sýnir hvernig rannsóknastofnanir og íslensk fyrirtæki geta unnið saman að lausnum og nýsköpun í sjávarútvegi sem gagnast bæði útgerð og umhverfi.“

Fram kemur að leiðangursstjóri hafi verið Haraldur Arnar Einarsson og að MarineGuardian-verkefnið sé styrkt af Horizon Europe, rannsókna- og nýsköpunaráætlun Evrópusambandsins.

Þá tengist leiðangurinn verkefninu InfiniFish, sem sömuleiðis sé styrkt af Horizon Europe.

„Þá fékk verkefnið mikilvægan styrk úr Verkefnasjóði sjávarútvegsins.“

Fleiri myndir sem Cécile Dargentolle, starfsmaður Matís, tók má sjá í umfjölluninni á vef Hafrannsóknastofnunar.

内容来自 Mbl.is - 200 mílur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅