Forseti FIFA fær öflugt framboð gegn sér - Kosið á næsta ári

Philippe Diallo, forseti franska knattspyrnusambandsins, hefur ákveðið að bjóða sig fram gegn Gianni Infantino í forsetakosningum FIFA í mars 2027.

Diallo, sem er 63 ára, nýtur stuðnings UEFA eftir að vaxandi óánægja hefur skapast með stjórnarhætti Infantino.

Arsène Wenger, fyrrverandi knattspyrnustjóri Arsenal, hafði áður verið talinn líklegur mótframbjóðandi en ákvað að gefa ekki kost á sér.

Í yfirlýsingu UEFA kemur fram að fulltrúar evrópskra knattspyrnusambanda hafi einróma lýst yfir stuðningi við Diallo.

„Við höfum miklar áhyggjur af þeirri stefnu sem FIFA hefur tekið,“ segir meðal annars í yfirlýsingunni.

Diallo gagnrýndi Infantino harðlega í september og sakaði hann um að hafa skaðað ímynd og samstöðu knattspyrnunnar.

„Traustið hefur verið rofið,“ sagði Diallo þá.

Infantino nýtur enn verulegs stuðnings utan Evrópu, meðal annars í Asíu, Afríku og Suður-Ameríku.

Kosningabaráttan gæti því orðið hörð en UEFA vonast til að sameina andstæðinga Infantino á bak við einn frambjóðanda.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅