Óhugnanlegar upplýsingar valda áhyggjum í Washington
Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 17. nóvember 2026 15:30
Hvíta húsið í Washington. Mynd:Wikimedia Commons
Bandarískar leyniþjónustustofnanir hafa komist yfir upplýsingar sem benda til þess að Íranir séu að undirbúa hugsanlega árás með geislavirkri sprengju (e. dirty bomb) eða efnavopni í Washington.
Skotmörkin eru sögð vera háttsettir embættismenn í ríkisstjórn Donalds Trump Bandaríkjaforseta. Frá þessu greinir CNN í ítarlegri umfjöllun sem byggir á samtölum við sjö bandaríska embættismenn.
Samkvæmt heimildum CNN eru upplýsingarnar óvenjulega nákvæmar og ná meðal annars til ákveðinna staðsetninga og einstaklinga sem gætu orðið fyrir árás. Þær hafa orðið til þess að bandarísk stjórnvöld hafa haldið nokkra fundi undanfarna daga til að undirbúa möguleg viðbrögð.
Óttast að sprengjuefni sé þegar í landinu
Sérstakar áhyggjur hafa vaknað vegna upplýsinga um að Íranir kunni þegar að hafa komið fyrir efnum til sprengjugerðar innan Bandaríkjanna.
Heimildarmaður CNN segir bandarísku leyniþjónustuna hafa orðið vara við samskipti Írana þar sem því er haldið fram að slík efni séu þegar í landinu. Ekki hefur þó tekist að staðfesta þær fullyrðingar.
Svokölluð óhrein sprengja, einnig kölluð skítasprengja, (e. dirty bomb) er hefðbundin sprengja sem inniheldur geislavirk efni. Þegar sprengjan springur dreifast efnin um nærliggjandi svæði og geta valdið mengun sem erfitt og kostnaðarsamt er að hreinsa upp.
Mesta hættan fyrir fólk í næsta nágrenni stafar yfirleitt af sprengingunni sjálfri, en geislavirku efnin geta einnig skapað heilsufarsáhættu, valdið miklum ótta og gert nauðsynlegt að rýma svæði um lengri eða skemmri tíma.
Engin yfirvofandi árás
Þrátt fyrir alvarleika upplýsinganna leggja bandarískir embættismenn áherslu á að ekkert bendi til þess að árás sé yfirvofandi. Enn sé óljóst hvort Íranir hafi mannskap eða getu til að hrinda slíkum áformum í framkvæmd.
Talsmaður Hvíta hússins segir stjórnvöld fylgjast grannt með öllum hugsanlegum ógnum en að engar trúverðugar upplýsingar liggi fyrir um yfirvofandi ógn við Bandaríkin.
Íranir hafa jafnframt vísað ásökunum um hugsanlega notkun efnavopna alfarið á bug, en ekki svarað sérstaklega upplýsingunum um mögulega geislavirka sprengju.
CNN bendir á að upplýsingarnar komi fram á sama tíma og átök Bandaríkjanna og Írans halda áfram og tilraunir til að ná samkomulagi hafa enn ekki skilað árangri.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗