Ekkert breyst enn sem komið er

Jón Gnarr segist enn styðja ríkisstjórnina.

Jón Gnarr segist enn styðja ríkisstjórnina. mbl.is/Karítas

Jón Gnarr, þingmaður utan þingflokka, ætlar áfram að styðja ríkisstjórnina og standa við samstarfssamning sinn við þingflokk Viðreisnar, sem hann gerði þegar hann gekk úr þingflokknum fyrir rúmum mánuði. 

Hann segir ekkert hafa breyst í afstöðu sinni þrátt fyrir brotthvarf Ingvars Þóroddssonar úr Viðreisn, og þrátt fyrir vaxandi vanda innan flokksins.

„Það hefur ekkert breyst neitt hjá mér varðandi það,“ segir Jón í samtali við mbl.is.

Jón yfirgaf þingflokk Viðreisnar en ákvað að segja sig ekki úr flokknum sjálfum. Í kjölfarið gerði hann samstarfssamning við þingflokkinn þar sem kveðið er á um stuðning við málefni ríkisstjórnarinnar.

Aðspurður hvort hann sjái sér enn fært að standa við það samkomulag segir Jón svo vera.

„Samningurinn sem ég gerði var við þingflokk Viðreisnar. Það er samstarfssamningur og svo líka hef ég sagt að ég styðji ríkisstjórnina.“

Kom ekki á óvart

Hann segir engar nýjar forsendur hafa komið fram sem breyti þeirri afstöðu.

„Það er ekkert svona sem hefur breyst eða neitt sem hefur breytt þeim forsendum. Ekki að minnsta kosti enn sem komið er.“

Jón segir jafnframt að úrsögn Ingvars úr Viðreisn hafi ekki komið sér á óvart enda hafi hann vitað af fyrirætlunum hans um nokkurt skeið, líkt og kom fram á mbl.is fyrr í dag.

Hann telur þó mikilvægt að greina á milli ástæðna þeirra fyrir óánægju með flokkinn. Ingvar hafi fyrst og fremst verið ósáttur við stefnu stjórnvalda en hans eigin óánægja hafi fremur snúist um samskipti og stjórnarhætti innan Viðreisnar.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅