Jóhann Berg lætur KSÍ heyra það

Jóhann Berg Guðmundsson er ekki sáttur.

Jóhann Berg Guðmundsson er ekki sáttur. Ljósmynd/Alex Nicodim

Jóhann Berg Guðmundsson, fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu, er ósáttur við hvernig KSÍ stóð að heiðrun EM-liðsins frá 2016 á Laugardalsvelli í gær. Hann vill einnig að sambandið sinni betur kveðjum til landsliðsfólks sem hættir.

Liðið var heiðrað í hálfleik í 3:0-sigri Íslands á Lúxemborg í Þjóðadeild UEFA, tíu árum eftir að það komst í átta liða úrslit EM. Aron Einar Gunnarsson var einnig kvaddur í síðasta landsleik sínum.

Jóhann Berg var ekki viðstaddur en sagði í hlaðvarpinu Sjöunni að honum hefði borist tölvupóstur um athöfnina. Enginn hjá KSÍ hefði hins vegar haft persónulega samband við hann eftir að hann lagði skóna á hilluna.

„Ég var ekkert að pæla í því fyrr en ég sé á Instagram að Dagný var líka að hætta og hún fékk skemmtilegan póst. Það hefði verið skemmtilegt að fá slíkt hið sama,“ sagði hann um kveðjufærslu sambandsins til Dagnýjar Brynjarsdóttur.

Jóhann telur að tilefni hafi verið til að gera meira úr viðburðinum og laða fleiri áhorfendur á völlinn.

„Af hverju er ekki frítt á völlinn? Fá fleiri og þetta gert almennilega? Þetta er allt saman virkilega lélegt. Það er svo margt sem má gera miklu betur, sérstaklega þarna í gær og fyrir mig og aðra landsliðsmenn sem hætta.“

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅