Eyða meira erlendis en halda að sér höndum heima
Það sem af er ári hefur mánaðarleg kortavelta Íslendinga erlendis aukist að meðaltali um 12% frá sömu mánuðum í fyrra, að teknu tilliti til gengis. Á sama tímabili hefur utanlandsferðum þeirra fækkað um rúm 7%. Ljósmynd/Colourbox
Kortavelta Íslendinga erlendis jókst um 11,3% milli ára í október á föstu gengi, á sama tíma og kortavelta þeirra innanlands dróst saman um 0,1% að raunvirði. Erlend kortavelta hefur aukist það sem af er ári þótt utanlandsferðum hafi fækkað.
Þetta kemur fram í Hagsjá Landsbankans sem birtist í dag. Heildarkortavelta heimilanna jókst um 2,7% milli ára í október, að teknu tilliti til verðlags og gengis.
Samdrátturinn í kortaveltu innanlands var talsvert minni í október en undanfarna mánuði.
Ferðum fækkar á árinu en fjölgaði í október
Það sem af er ári hefur mánaðarleg kortavelta Íslendinga erlendis aukist að meðaltali um 12% frá sömu mánuðum í fyrra, að teknu tilliti til gengis. Á sama tímabili hefur utanlandsferðum þeirra fækkað um rúm 7%.
Þróunin í október var þó önnur hvað ferðalögin varðar. Þá fóru Íslendingar í rúmlega 14% fleiri utanlandsferðir en í sama mánuði í fyrra, samkvæmt talningu Ferðamálastofu.
Í Hagsjánni er áréttað að erlend kortavelta nái bæði til kortanotkunar á ferðalögum og viðskipta við erlendar netverslanir. Aukna erlenda kortaveltu er því ekki hægt að rekja eingöngu til útgjalda á ferðalögum.
Rúmur fjórðungur kortaveltunnar erlendis
Erlend kortavelta nam 26% af kortaveltu Íslendinga í október. Hún jókst hraðar milli ára en allra síðustu mánuði á undan.
Greiningardeild Landsbankans telur háa vexti, aukið atvinnuleysi og hægari kaupmáttarvöxt hafa dregið úr neysluvilja og neyslugetu heimilanna.
Í nýjustu hagspá bankans er gert ráð fyrir lítilli aukningu einkaneyslu í ár. Hún taki síðan smám saman við sér þegar vextir lækka og óvissa minnkar.
Innlán heimilanna hafa aukist mikið undanfarið og gerir bankinn ráð fyrir að hluti þess sparnaðar renni í aukna neyslu þegar fram líða stundir.
内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗