Farið fram á atvinnurekstarbann
Skiptastjóri yfir veisluþjónustunni Veislan ehf. sem tekin var til gjaldþrotaskipta í fyrra hefur farið fram á atvinnurekstarbann yfir eigandanum Helga Magnúsi Hermannsyni.
RÚV sagði fyrst frá en skiptastjórinn Ólafur Björnsson staðfesti við mbl.is
Gjaldþrot Veislunnar nam um 216 milljónum króna og ekkert fékkst upp í kröfurnar. Veislan var í 500 fermetra húsnæði að Austurströnd 12 á Seltjarnarnesi og var það um tíma auglýst til sölu áður en Arion banki leysti eignina til sín.
Helgi Magnús hefur tengst fjölda gjaldþrota að undanförnu ásamt viðskiptafélaga sínum Jóhannesi Birgi Skúlasyni og má þar nefna um 600 milljóna króna samanlagt gjaldþrot í tengslum við veitingastaðina TGI Fridays, Adesso og Sport og grill í Smáralind og Grillhúsið á Sprengisandi í gegnum eignarhaldsfélögin Tankurinn og Búsendi.
Þriggja ára atvinnurekstarbann
Atvinnurekstarbann var fyrst kynnt í gjaldþrotalögum með breytingum í lok árs árið 2022 og hefur skatturinn lagt auknar kröfur á að þeim verði beitt þegar fleiri en eitt gjaldþrot tengist sömu einstaklingum.
Dómari getur, að beiðni skiptastjóra, bannað einstaklingi að stjórna félagi, yfirleitt í þrjú ár ef viðskiptahættir hans hafa verið svo skaðlegir eða óverjandi að hann telst óhæfur til þess.
Í síðustu viku var sagt frá lokun Hamborgarafabrikkunnar með innsigli. Í umfjöllun RÚV segir jafnframt að m.a. sé tvítugur sonur Helga Magnúsar sé skráður eigandi móðurfélagsins ásamt tæplega sjötugum manni.
Þá segir jafnframt að Helgi hafi alls tengst 23 félögum og að mörg þeirra hafi farið í þrot.
内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
