Fækkað um fimm hjá atvinnuvegaráðuneytinu

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra.

Þremur starfsmönnum í atvinnuvegaráðuneytinu hefur verið sagt upp og ekki stendur til að ráða í stöður tveggja sem nýlega létu af störfum hjá ráðuneytinu. Með þessu sparast fimm stöðugildi, en ráðstöfunin kemur til vegna aðhaldskröfu í fjárlögum.

Kolbeinn Árnason, ráðuneytisstjóri í atvinnuvegaráðuneytinu, staðfestir þetta í samtali við mbl.is, en Vísir greindi fyrst frá.

Kolbeinn segir að aðgerðirnar séu þvert á ráðuneytið og á flestum skrifstofum. „Þetta er liður í að mæta þessum aðhaldskröfum,“ segir hann. Spurður hvort frekari aðgerða sé að vænta segir hann svo ekki vera. „Hvað varðar starfsmannahald er þetta bara ein aðgerð og henni er lokið.“

Hann tekur þó fram að innan ráðuneytisins sé alltaf leitað leiða til að auka skilvirkni, en að það nái eftir þessar mannabreytingar ekki til starsmannahaldsins.

Kolbeinn Árnason, ráðuneytisstjóri í atvinnuvegaráðuneytinu.

Kolbeinn Árnason, ráðuneytisstjóri í atvinnuvegaráðuneytinu. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Í síðasta mánuði greindi mbl.is frá því að til skoðunar væri hjá ráðuneytinu hvernig bregðast átti við aðhaldskröfunni. Var farið yfir þær aðhaldsaðgerðir sem önnur ráðuneyti hefðu farið í eða ætluðu að fara í vegna kröfunnar.

Þá var haft eftir Kolbeini að skipulagsvinna stæði yfir „og að hún kunni að leiða til alls konar hluta.“

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅