Chelsea sagt ætla að reyna að kaupa tvo frá Barcelona í janúar

Chelsea hefur mikinn áhuga á að fá tvo leikmenn Barcelona til félagsins þegar félagaskiptaglugginn opnar í janúar.

Samkvæmt katalónska miðlinum El Nacional er Lundúnafélagið tilbúið að bjóða samtals 150 milljónir punda í miðjumanninn Fermín López og varnarmanninn Jules Koundé.

Fermín, sem er 23 ára, hefur vakið athygli fyrir frammistöðu sína hjá Barcelona og spænska landsliðinu.

Koundé er hins vegar 28 ára franskur landsliðsmaður sem hefur verið mikilvægur hlekkur í varnarlínu Barcelona undanfarin ár.

Chelsea vill styrkja bæði miðjuna og varnarleikinn og telur leikmennina geta bætt miklum gæðum við hópinn.

Ekki liggur fyrir hvort Barcelona sé tilbúið að selja þá, en tilboð upp á 150 milljónir punda gæti reynst freistandi.

Ljóst er að Chelsea stefnir á stórtækar aðgerðir á félagaskiptamarkaðnum í janúar.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅