Breki Karlsson: Erlend tryggingafélög halda sig frá Íslandi vegna krónunnar
Andstaða við skynsamlegar breytingar á greiðslu örorkubóta er mikil og mest hjá þeim fyrirtækjum sem auglýsa grimmt að þau grípi fólk þegar það verður fyrir tjóni. Hér er um að ræða lögfræðistofur. Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, er þó bjartsýnn á að eitthvað þokist í þessum efnum. Mikið er í húfi þar sem mikill kostnaður við skaðatryggingar hér á landi stafar m.a. af því að ekki er miðað við neitt lágmark þegar örorkubætur eru greiddar úr. Breki er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.
Hægt er að hlusta á brot úr þættinum hér:
Nú, þegar kemur að vöxtum og bankakerfinu þá er nú heldur betur munur á kostnaði hér á landi og annars staðar. Og það eru nú eiginlega allir sem svona virkilega skoða dæmið, þeir komast að þeirri niðurstöðu að erlendir aðilar vilja helst ekki koma til Íslands vegna þess að hér þurfa þeir ekki bara að taka kreditáhættu, þeir þurfa að taka gengisáhættu líka sem þeir eru bara ekki tilbúnir til að taka. Fyrir vikið eru íslenskir bankar og íslensk tryggingafélög, þau eru vel varin fyrir utanaðkomandi samkeppni. Af hverju eru ekki Neytendasamtökin að berjast fyrir því að við gerum það sem þarf til að taka upp til dæmis evru?
„Í okkar rannsókn á tryggingamarkaðnum á Íslandi höfðum við samband við tvö stærstu tryggingafélög á Norðurlöndum og þau svöruðu þessu nákvæmlega svona: Við getum ekki, við skiljum ekki krónuna, við getum ekki tekið þá, sú áhætta er of mikil fyrir okkur. Þess vegna sækjum við frekar yfir í Balkanlöndin heldur en til Íslands og það eru engin áform um að sækja hingað og þetta er náttúrlega, er, er hérna bara, er slæmt sko.“
Íslenska krónan er fíllinn í stofunni.
„Já, ástæða þess að við fáum ekki erlenda samkeppni inn á tryggingamarkaðinn eða inn á bankamarkaðinn.“
En Neytendasamtökin hafa ekki gert það að sérstöku baráttumáli að til dæmis það verði tekinn upp annar gjaldmiðill?
„Nei, við höfum ekki tekið þá baráttu upp á okkar arma. En við höfum hins vegar...“
En af hverju ekki?
„Það hefur bara ekki verið samstaða um það í stjórn samtakanna.“
Nei. En hafið þið gert könnun meðal félagsmanna?
„Nei, við höfum nú ekki gert það, höfum ekki kannað það.“
Hér kemur þá tillaga.
„Mjög góð tillaga.“
Það er nú farið að síga á seinni hlutann hjá okkur. En hvernig hefur verið tekið í, ég veit að tryggingafélögin taka vel í ykkar tillögur varðandi örorkuna til dæmis. En hafið þið fengið einhver viðbrögð frá stjórnvöldum, frá ríkisstjórninni?
„Við höfum kynnt þetta bæði fyrir ráðherrum ríkisstjórnarinnar og okkur hefur verið tekið vel. Við fáum þétt handtak og guðs blessun hvar sem við komum með þessa skýrslu. Við erum að vonast til þess að það verði tekin einhver skref núna í vetur með það að koma þessu nú af stað. Það hafa verið gerðar tilraunir til þess að breyta skaðabótalögum. Það er mjög erfitt, það er mjög sterk andstaða, sér í lagi þeirra fyrirtækja
sem hafa hag af núverandi kerfi. Við erum að tala um fyrirtækin sem auglýsa langmest af öllum í sjónvarpi og þar af leiðandi þau fyrirtæki sem grípa fólk þegar að það lendir í slysi og taka 25% af bótunum þínum. Þannig að það er sterk andstaða en þetta er stórt mál og við eigum alla veganna að þá að ræða okkur niður á þetta. Kannski er þetta bara frábært kerfi sem við höfum núna þó að það sé dýrt og kannski viljum við hafa það svona dýrt og allir fái bætur sem lenda í einhverju smá tjóni. Eða, eða lenda í atburði sem ekki einu sinni er tjón að okkar mati. En eða þá að það er þá tækifæri til breytinga og þá líka spurning um hvort við viljum setja einhvern þröskuld.
Við værum alveg til í að það væri til dæmis gerð önnur rannsókn sem ef þessari er eitthvað ábótavant. En ég held að við séum í fyrsta skipti núna, með tryggingaskýrslu Neytendasamtakanna, með grunn þar sem við horfum á allan markaðinn og allt landslagið. Þetta eru hátt í 300 blaðsíður bæði hvað varðar skaðabótakerfið en líka tryggingakerfið og flækjustig þess og hvernig fólk er að leysa þetta í nágrannalöndum okkar.
Það er eins og við höfum annaðhvort leyft þessum iðnaði að bara vaxa óáreittum án þess að hugsa um það eða þá að þetta er bara einhver óværa sem hefur svona fengið að viðgangast. Og nú er bara, held ég, tími til kominn að koma með skærin og klippa það sem er óþarfi í burtu þannig að garðurinn fái að dafna og þetta verði okkur til, til gagns.“
Já, við megum ekki láta þá sem á fínni ensku eru kallaðir ambulance chasers, megum ekki láta þá stjórna því hvernig skaðabótalög eru og reglur um örorku.
„Nei, alls ekki. Þetta á að þjóna öllum, allri þjóðinni.“
Já, lögin eiga að þjóna fólkinu, ekki bara lögfræðingunum.
„Nákvæmlega.“
Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér:
Einnig er hægt að hlusta á Spotify.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗