Lausn hafnað eftir sex ára fangelsisdóm

Í greinargerð héraðssaksóknara kemur fram að maðurinn hafi í félagi við aðra staðið að innflutningi á miklu magni fíkniefna til landsins í sölu- og dreifingarskyni. Ljósmynd/Colourbox

Landsréttur staðfesti í gær að maður sem Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt í sex ára fangelsi fyrir meðal annars stórfellt fíkniefnalagabrot skuli áfram sæta gæsluvarðhaldi. Maðurinn hefur áfrýjað sakfellingardóminum til Landsréttar.

Hann skal sæta gæsluvarðhaldi þar til endanlegur dómur gengur í máli hans, þó ekki lengur en til klukkan 16 hinn 4. maí 2027. Maðurinn hefur setið óslitið í gæsluvarðhaldi frá 30. maí síðastliðnum og kemur sá tími til frádráttar fangelsisrefsingunni samkvæmt héraðsdóminum.

Krafðist farbanns til vara

Maðurinn kærði úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur frá 10. nóvember um áframhaldandi gæsluvarðhald. Hann krafðist þess að úrskurðurinn yrði felldur úr gildi, til vara að honum yrði gert að sæta farbanni og að því frágengnu að gæsluvarðhaldinu yrði markaður skemmri tími.

Ákæruvaldið krafðist staðfestingar úrskurðarins.

Í greinargerð héraðssaksóknara kemur fram að maðurinn hafi í félagi við aðra staðið að innflutningi á miklu magni fíkniefna til landsins í sölu- og dreifingarskyni.

Vísað til sakfellingar og almannahagsmuna

Héraðsdómur byggði niðurstöðu sína á ákvæði sakamálalaga sem heimilar gæsluvarðhald ef sterkur grunur leikur á afbroti sem að lögum getur varðað tíu ára fangelsi og brotið er þess eðlis að ætla megi varðhald nauðsynlegt með tilliti til almannahagsmuna.

Dómurinn vísaði til sakfellingar mannsins og þess að Landsréttur hefði ítrekað staðfest fyrri úrskurði um gæsluvarðhald hans. Engar forsendur hefðu breyst sem röskuðu því mati.

Landsréttur taldi skilyrði áframhaldandi gæsluvarðhalds uppfyllt með vísan til sex ára fangelsisdómsins og að öðru leyti til forsendna héraðsdóms.

Niðurstaðan um áframhaldandi varðhald var því staðfest. Í ljósi þess að sakfellingardóminum hafði verið áfrýjað tók Landsréttur sérstaklega fram að varðhaldið skyldi standa þar til endanlegur dómur gengi, þó ekki lengur en til framangreinds hámarkstíma.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅