Draumurinn úti hjá íslensku strákunum
Íslenska karlalandsliðið skipað leikmönnum 19 ára og yngri er úr leik í undankeppni Evrópumótsins í knattspyrnu 2027 eftir tap fyrir Wales í vítaspyrnukeppni í dag.
Liðin gerðu 1:1-jafntefli í lokaleik sínum í annarri umferð undankeppninnar. Alexander Máni Guðjónsson skoraði mark Íslands.
Ísland og Wales voru jöfn að öllu leyti í þriðja og fjórða sæti riðilsins. Því þurfti vítaspyrnukeppni til að skera úr um hvort liðið héldi sæti sínu í A-deild og kæmist í síðustu umferð undankeppninnar.
Wales hafði betur og heldur áfram keppni en íslenska liðið situr eftir.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗