Sakar forseta þingsins um að leka upplýsingum

Ingvar Þóroddsson telur að forseti þingins hafi lekið upplýsingum.

Ingvar Þóroddsson telur að forseti þingins hafi lekið upplýsingum. mbl.is/Karítas

Ingvar Þóroddsson, sem gekk úr Viðreisn í gær og til liðs við Sjálfstæðisflokkinn, sakar forseta Alþingis um að hafa lekið upplýsingum um vistaskipti hans í gærmorgun áður en hann náði sjálfur að greina samflokksfólki frá ákvörðun sinni.

Ingvar kvaddi sér hljóðs við upphaf þingfundar í dag, og sagðist hann hafa orðið fyrir miklum vonbrigðum með þennan trúnaðarbrest. Nýir samherjar hans í Sjálfstæðisflokknum kalla eftir því að forsætisnefnd taki málið fyrir.

„Frú forseti. Mér þykir þetta ekki skemmtilegt en ég sé mig knúinn til að koma hérna upp og beina því til forseta að ég varð fyrir miklum vonbrigðum með að samtal sem ég átti í gærmorgun við hæstvirtan forseta um mín vistaskipti hafi fljótt í kjölfarið frést út, sem gerði það að verkum að ég hafði ekki tök á að tala við fólk sem ég vildi að myndi frétta af þessu frá mér en ekki annars staðar frá,“ sagði Ingvar á Alþingi í dag. 

„Mér þykir mjög miður hvernig þetta atvikaðist og vildi koma hingað upp og tjá mig um þetta og jafnframt þannig að þetta þurfi ekki að gerast aftur.“

Vísaði í viðtal við Pawel

Ólafur Adolfsson og Jón Gunnarsson, þingmenn Sjálfstæðisflokksins, stigu báðir í ræðustól á eftir Ingvari og sögðu málið grafalvarlegt.

Vísaði Ólafur í útvarpsviðtal við Pawel Bartoszek, þingflokksformann Viðreisnar, frá því í morgun þar sem sá síðarnefndi sagðist hafa frétt af brotthvarfi Ingvars úr frá þingmanni úr öðrum flokki. Hafði Ólafur þetta eftir Pawel:

„Leitt að heyra. Þá hafði ég ekki heyrt neitt af því. Hann sendir tilkynningu til forseta Alþingis og síðan byrjar þetta að kvisast um gangana og berst til mín sem sagt með þeim hætti og reyndar til Þorgerðar Katrínar með sama hætti, hún fær símtal frá öðrum aðila þar sem hún er stödd í Hörpu á heimsþingi kvenleiðtoga.“

Skýlaus krafa að málið verið upplýst

Kallaði Ólafur eftir skýringum á því hvernig á þessu stæði.

„Það er augljóst í mínum huga að hér hefur trúnaður forseta ekki haldið og ég hlýt að kalla eftir skýringum frá forseta og háttvirtum þingflokksformanni um hvernig þetta kemur til. Það er algerlega augljóst að það er grafalvarlegt mál ef ekki er hægt að treysta forseta fyrir upplýsingum eins og þessum.“

Jón tók undir orð samflokksmanns síns og sagði það hafa vakið mikla athygli þegar upplýsingar fóru að berast um málið í gærmorgun, sem hafi svo verið staðfestar í viðtalinu við Pawel í morgun.

„Ég held að það hljóti að vera alveg skýlaus krafa okkar, virðulegur forseti, að þetta verði upplýst og tekið fyrir í forsætisnefnd og það verði upplýst hvernig þetta kom til. Við höfum stundum orðið vitni að því að það hafa lekið út úr nefndum og slíkt upplýsingar sem beðið er um trúnað á, en í þetta skipti er þetta innan úr æðstu stjórn þingsins og við því verður að bregðast.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅