Vilja aukinn meirihluta til að selja innviðafyrirtæki

Samfylkingin er alfarið andvíg sölu Ljósleiðarans og telur að félagið og aðrir mikilvægir innviðir eigi áfram að vera í eigu almennings. Myndin er frá fundi í borgarstjórn Reykjavíkur. mbl.is/Karítas

Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar í Reykjavík vilja að samþykki tveggja þriðju hluta sveitarstjórnarmanna þurfi til að selja meirihluta í mikilvægum innviðafyrirtækjum sveitarfélaga.

Þeir leggja til á fundi borgarstjórnar í dag að skorað verði á Alþingi að setja slíkt skilyrði í sveitarstjórnarlög.

Tillagan nær meðal annars til veitna, orkufyrirtækja, hafna og fjarskiptafyrirtækja. Í tilkynningu borgarstjórnarflokksins segir að tilefnið sé áform meirihlutans í borgarstjórn um að selja Ljósleiðarann og Carbfix, dótturfélög Orkuveitunnar.

Samfylkingin er alfarið andvíg sölu Ljósleiðarans og telur að félagið og aðrir mikilvægir innviðir eigi áfram að vera í eigu almennings.

Vilja breiðari samstöðu um sölu

„Mikilvægir innviðir í eigu sveitarfélaga eru sameiginlegar eignir íbúa, sem oft hafa verið byggðar upp með fjárfestingum margra kynslóða. Okkur finnst eðlilegt að ákvörðun sem bindur hendur allra sem á eftir koma sé ekki tekin með einföldum meirihluta. Slíkar ákvarðanir kalli á breiðari samstöðu,“ er haft eftir Skúla Helgasyni, borgarfulltrúa Samfylkingarinnar og stjórnarmanns í Orkuveitunni, í tilkynningunni.

Þar segir að hluthafafundur Ljósleiðarans hafi í lok október samþykkt að breyta mætti eignarhaldi fyrirtækisins, með fyrirvara um staðfestingu eigenda. Meirihlutinn í borgarstjórn hafi jafnframt lýst vilja til að selja félagið.

Borgarstjórnarflokkur Samfylkingarinnar telur að bæði Ljósleiðarinn og Carbfix geti skilað eigendum sínum miklum arði á komandi árum og áratugum.

Segja borgina hafa farið á mis við milljarða í arð

Í tilkynningunni er vísað til sölu Reykjavíkurborgar á hlut sínum í Landsvirkjun árið 2006. Samfylkingin telur að borgin hefði fengið rúmlega 72 milljarða króna í arð á undanförnum tuttugu árum hefði hún haldið hlutnum.

Skúli segir borgarfulltrúa flokksins hafa gagnrýnt söluna á sínum tíma og talið hlutinn seldan á undirverði.

Borgarstjórnarflokkurinn bendir á að salan hafi farið fram í meirihlutasamstarfi Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Nú vilji sömu flokkar, ásamt Viðreisn, selja Ljósleiðarann.

Vísa til reglna um stórar ákvarðanir

Í greinargerð tillögunnar er bent á að þegar gildi ströng skilyrði um ýmsar stórar ákvarðanir í hlutafélögum. Þar er vísað til ákvæða hlutafélagalaga um samþykki tveggja þriðju hluta atkvæða fyrir breytingum á samþykktum, samruna eða skiptingu félaga.

Jafnframt segir að breyting á sameignarsamningi Orkuveitunnar krefjist samþykkis eigenda þriggja fjórðu hluta fyrirtækisins.

Samfylkingin telur eðlilegt að sambærileg krafa um aukinn meirihluta gildi þegar sveitarfélög selja meirihluta í mikilvægum innviðafyrirtækjum.

Borgarstjórnarflokkurinn telur ríka almannahagsmuni tengjast starfsemi Ljósleiðarans, meðal annars þjóðaröryggi, vörnum gegn fjölþáttaógnum og heilbrigðri samkeppni á fjarskiptamarkaði. Í því sambandi bendir hann á stöðu félagsins sem helsta keppinautar Mílu.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅