Jóhann Berg sendir væna sneið í Laugardalinn: Enginn tekið upp símann - „Skrýtin vinnubrögð“

Jóhann Berg Guðmundsson, fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu, gagnrýnir vinnubrögð Knattspyrnusambands Íslands (KSÍ) harðlega og segir engan frá sambandinu hafa haft samband við sig persónulega eftir að hann lagði skóna á hilluna. Hann telur jafnframt að KSÍ hafi misst af góðu tækifæri til að gera meira úr heiðrun EM-landsliðsins frá 2016 og kveðjustund Arons Einars Gunnarssonar.

Jóhann Berg, sem lék 102 A-landsleiki fyrir Ísland og átti farsælan atvinnumannaferil, ræddi málið í hlaðvarpinu Sjöunni, sem hann stýrir ásamt Herði Snævari Jónssyni.

Í hálfleik í leik Íslands og Lúxemborgar í gær var landsliðið sem komst á EM 2016 heiðrað. Jóhann Berg var einn af lykilmönnum liðsins en var ekki viðstaddur athöfnina, líkt og fleiri leikmenn úr hópnum.

Hann segir leikmenn hafa fengið tölvupóst vegna heiðrunarinnar en að engin persónuleg samskipti hafi átt sér stað við hann eftir að hann lauk knattspyrnuferlinum.

„Já, ég auðvitað fékk, það var sent á okkur email þarna að þetta væri að fara að gerast. En KSÍ hefur til dæmis ekkert haft samband við mig eftir að ég hætti í fótbolta,“ sagði Jóhann Berg. Jóhann lagði skóna á hilluna í síðasta mánuði.

Mynd/KSÍ

Vakti athygli þegar Dagný fékk kveðju

Jóhann Berg segist ekki hafa velt samskiptaleysi KSÍ mikið fyrir sér fyrr en hann sá að sambandið hafði þakkað Dagnýju Brynjarsdóttur fyrir hennar framlag með færslu á samfélagsmiðlum eftir að hún tilkynnti að hún væri hætt í knattspyrnu.

„Ég var svo sem ekkert að pæla í því fyrr en á Instagram, þá sá ég að Dagný var líka að hætta og hún fékk skemmtilegan póst. En það hefði verið nú gaman að fá hið sama.“

Hann telur að sambandið þurfi að gæta betur að því hvernig það kveður leikmenn sem hafa lagt sitt af mörkum fyrir íslensku landsliðin.

„Þetta er náttúrulega bara eitthvað sem KSÍ, ég veit það ekki, þeir þurfa kannski að passa upp á.“

„Af hverju er ekki frítt á völlinn?“

Jóhann Berg gagnrýndi einnig skipulagið í kringum heiðrun EM-landsliðsins og kveðjustund Arons Einars Gunnarssonar, sem lék sinn síðasta landsleik í gær.

Að hans mati hefði KSÍ átt að nýta tilefnið betur og gera meira til að laða áhorfendur á völlinn.

„Þú ert að heiðra þarna stærsta afrek í knattspyrnusögunni og Aron að hætta, af hverju er ekki búið til eitthvað meira? Af hverju er ekki frítt á völlinn, fá fleiri, gera þetta almennilega?“

Hann var afar ósáttur við hvernig staðið var að málum.

„Þetta er einhvern veginn virkilega allt saman bara lélegt, finnst mér, og svo mikið af hlutum sem hægt er að gera miklu betur. Og sérstaklega þarna í gær og sérstaklega bara eins og fyrir mig persónulega og aðra landsliðsmenn sem hætta.“

Getty Images

„Voðalega skrýtin vinnubrögð“

Jóhann Berg segir að það þurfi ekki mikið til að bæta samskiptin við leikmenn sem eru að ljúka ferlinum. Eðlilegt væri að sambandið tæki frumkvæði að samtali um mögulega heiðrun í stað þess að bíða þar til síðar.

„Þetta eru bara voðalega skrýtin vinnubrögð, finnst mér. Allavega þú færð kannski símtal og það er kannski byrjaður einhver díalógur um: Heyrðu, okkur langar að heiðra þig og hvenær kemstu? Eða hvenær eigum við að gera það? Þannig að það sé eitthvað byrjað.“

Hann telur jafnframt sérkennilegt ef sambandið hefur ekki samband fyrr en gagnrýni á vinnubrögðin kemur fram opinberlega.

„Og svo er auðvitað bara skrítið þegar þeir allt í einu ákveða að hringja í dag þegar þetta kemur út. Þá mæta þeir í símtalið, skilurðu, sem er auðvitað svolítið skrítið.“

Jóhann Berg segir að um sé að ræða einföld atriði sem KSÍ ætti að geta gert mun betur.

„Þetta er svo auðvelt, þetta er svo auðvelt,“ sagði Jóhann Berg í Sjöunni.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅