Þau skipa dómnefnd Viðurkenningarhátíðar FKA 2027

Ragna Gestsdóttir

Ragna Gestsdóttir

Þriðjudaginn 17. nóvember 2026 14:30

Dómnefnd 2027: Páll Magnússon, Harpa Þrastardóttir, Eliza Reid, Sigríður Ó. Kristjánsdóttir, Baldvin Þorsteinsson, Sunneva Einarsdóttir og Hjálmar Gíslason. Mynd: FKA.

Öflug og fjölbreytt dómnefnd mun velja þær þrjár konur sem hljóta viðurkenningar FKA á næstu Viðurkenningarhátíð.

Dómnefnd Viðurkenningarhátíðar FKA 2027 hefur verið skipuð og er hún stútfull af krafti, þekkingu og fjölbreyttri reynslu úr íslensku atvinnulífi og samfélaginu. Dómnefndin mun fara yfir tilnefningar og velja þær þrjár konur sem hljóta viðurkenningar FKA á hátíðinni þann 20. janúar 2027. Opið er fyrir tilnefningar til og með 22. nóvember næstkomandi.

„Ég er afar ánægð með dómnefnd Viðurkenningarhátíðar FKA í ár og hlakka til að vinna með þessum öfluga hópi,“ segir Harpa Þrastardóttir, stjórnarkona FKA, eigandi og ráðgjafi hjá Kjarki ráðgjöf og formaður dómnefndar Viðurkenningarhátíðar FKA 2027.

„Hópurinn hefur fjölbreytta reynslu og ólíkan bakgrunn sem mun nýtast vel við að velja konur sem eiga skilið viðurkenningu fyrir framlag sitt. Það er mér bæði ánægja og heiður að leiða þessa vinnu.“

Dómnefnd Viðurkenningarhátíðar FKA 2027

Auk Hörpu Þrastardóttur, formanns dómnefndar, sitja eftirtalin í dómnefndinni, í stafrófsröð:

Baldvin Þorsteinsson, forstjóri Samherja

Eliza Reid, rithöfundur, meðstofnandi Iceland Writers Retreat og fyrrverandi forsetafrú Íslands

Hjálmar Gíslason, stofnandi og forstjóri GRID

Páll Magnússon, fjölmiðlamaður

Sigríður Ó. Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri Vestfjarðastofu

Sunneva Einarsdóttir, hlaðvarpsstjórnandi og fyrirtækjaeigandi

Hvaða þrjár konur verða heiðraðar á Viðurkenningarhátíð FKA 2027?

Árlega heiðrar Félag kvenna í atvinnulífinu, FKA, konur sem hafa verið fyrirmyndir, sýnt frumkvæði og haft áhrif í íslensku atvinnulífi og samfélaginu. Viðurkenningarhátíð FKA fer fram miðvikudaginn 20. janúar 2027 kl. 17.00 á Hótel Reykjavík Grand. Hátíðin er opin öllum og aðgangur er ókeypis. Á hátíðinni verða tilkynnt nöfn þeirra þriggja kvenna sem hljóta viðurkenningar FKA 2027.

Veittar verða þrjár viðurkenningar:

FKA viðurkenning

Hvatningarviðurkenning FKA

- Þakkarviðurkenning FKA

FKA kallar eftir tilnefningum frá almenningi og atvinnulífinu. Hægt er að tilnefna konur til og með sunnudeginum 22. nóvember 2026.

Tilnefna hér.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅