Frábærar fréttir frá Noregi - Meiðsli Kristals ekki alvarleg

Hörður Snævar Jónsson

Þriðjudaginn 17. nóvember 2026 14:31

Kristall Máni Ingason. Mynd: DV/KSJ

Góð tíðindi berast af Kristal Mana Ingasyni, leikmanni Brann, sem meiddist á hné í landsleik Íslands gegn Búlgaríu á föstudaginn.

Kristall þurfti að yfirgefa völlinn eftir um 25 mínútna leik vegna mikilla verkja og voru uppi áhyggjur af því að meiðslin væru alvarleg.

Brann greinir hins vegar frá því að rannsóknir hafi leitt í ljós að ekki sé um alvarleg hnémeiðsli að ræða.

„Myndirnar sýna engin alvarleg meiðsli, en hann er með minniháttar meiðsli í hnénu sem þarf að meðhöndla,“ segir Arne Instebø, læknir Brann.

Hann telur mögulegt að Kristall snúi aftur á völlinn eftir nokkrar vikur, en staðan verði metin dag frá degi.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅