Hissa á kröfum Danans
Launa- og bónuskröfur Thomas Frank komu Crystal Palace á óvart í viðræðum um að hann tæki við sem næsti knattspyrnustjóri úrvalsdeildarfélagsins, samkvæmt Football Insider.
Mick Brown, fyrrverandi yfirnjósnari Manchester United, sagði í samtali við Football Insider að samningaviðræður um laun Danans hefðu tafið tilkynninguna.
„Mér skilst að tafirnar á ráðningu Franks snúist um launin sem hann krafðist,“ sagði Brown.
Frank, sem áður stýrði Brentford og Tottenham, var í gær kynntur sem arftaki Pierre Sage sem var rekinn.
Palace situr á botni ensku úrvalsdeildarinnar með sjö stig eftir tíu leiki.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗